Hugað að Heimsmeistaramóti

  • 31. október 2012
  • Fréttir
Hugað að Heimsmeistaramóti

Landsliðsnefnd LH boðar til opins fundar um málefni íslenska landsliðsins í húsakynnum Líflands, Brúarvogi 1-3 kl. 18:00 í kvöld.

 
„Allir áhugasamir hvattir til að mæta. Á fundinum gefst öllum gott tækifæri til að kynna sér það starf sem er í gangi vegna þátttöku Íslands á heimsmeistaramótinu í Berlín 2013, hvernig skipað verður í landslið Íslands fyrir það mót og hverjar áherslur liðsstjóra liðsins eru,“ segir í tilkynningu en Hafliði Halldórsson liðsstjóri mun fara yfir stefnu sína fyrir mótið sem haldið verður 4.-11. ágúst á næsta ári.
 
Fundarefni kvöldsins er:
 
 *   Lykill kynntur ásamt úrtöku og hvernig fyrirkomulag verður á henni
 *   Liðsstjóri kynnir sig og að hverju hann stefni og áherslur hans í vetur
 *   Stjórnarmaður FEIF kynnir hvað sé helst á dagskrá hjá þeim
 *   Farið yfir helstu verk nefndarinnar fram að móti
 *   Umræður
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link