Metár
Sparta frá Eystra-Fróðholti hlaut 10 fyrir tölt, hægt tölt og samstarfsvilja á Landsmóti, einstakur gæðingur Myndir: Freydís Þóra Bergsdóttir
Sýningarárið 2026 gekk afar vel og var um metár að ræða, hvort sem litið er til fjölda dóma eða gæða hrossanna. Alls voru felldir 1.699 dómar en fleiri dómar hafa ekki verið kveðnir upp á einu ári síðan árið 2012. Fleiri sýningar voru haldnar þetta árið eða 20 sýningar um landið samanborið við 16 sýningar í fyrra. Flestir dómar voru felldir á Gaddstaðaflötum eins og mörg undanfarin ár eða 785 dómar. Alls komu 1.266 hross til dóms frá 560 búum eða upprunum. Það er töluverð aukning í fjölda uppruna á síðustu árum og ánægjulegt að sjá hversu margir ræktendur eru að sýna sín hross og hafa metnað í sínu starfi. Hápunktur ársins var að sjálfsögðu Landsmót að Hólum í Hjaltadal. Alls voru dæmd á mótinu 175 hross í einstaklingssýningum og eftirtektarvert hvað hrossin stóðu sig almennt vel á mótinu og mörg hver blómstruðu.
Dómarar og knapar
Það voru 17 dómarar sem komu að dómum á Íslandi þetta árið sem er svipaður fjöldi og undanfarin ár. Þeir dæmdu frá 199 upp í 731 sýningar en meðaltalið var 345 sýningar. Það er mikilvægt að fremur fámennur hópur dómara komi að dómstörfum árlega og fá nægilega þjálfun þannig að samræmi sé sem mest í dómstörfunum og náðist það ágætlega í ár. Alls voru 199 knapar sem sýndu hross í kynbótadómi og 180 knapar sýndu hross í hæfileikadómi. 59 knapar sýndu fimm eða fleiri sýningar, 36 knapar sýndu 10 eða fleiri sýningar og 18 sýndu 20 eða fleiri sýningar. Það hefur verið árleg aukning í fjölda knapa sem sýna hross í kynbótadómi á Íslandi en það voru 156 knapar sem sýndu hross í reiðdómi í fyrra svo dæmi sé tekið. Þetta er því töluverður hópur knapa sem sýna kynbótahross á Íslandi þessi misserin og árlega mæta öflugir ungir knapar til leiks sem er afar verðmætt fyrir ræktunarstarfið.
Í töflunum hér fyrir neðan má sjá meðaltöl og breytileika í einkunnagjöf allra eiginleika í sköpulagi og hæfileikum á Íslandi á árinu:
Meðaltöl eiginleikanna sem dæmdir eru i kynbótadómi eru heldur hærri í ár samanborið við síðasta ár en breytileiki í einkunnagjöf er afar svipaður sem segir að notkun skalans er ekki að dragast saman. Skalinn var aðeins meira að segja aðeins betur notaður á þessu ári ef litið er til hæstu og lægstu einkunna. Meðalaldur sýndra hrossa í ár var 5,90 ár sem er aðeins lægri meðalaldur samanborið við árið í fyrra (5,97 ár). Þetta skýrist af því að heldur fleiri fjögurra og fimm vetra hross eru sýnd á Landsmótsárum og er því meðalaldur yfirleitt alltaf aðeins lægri þá. Í meðfylgjandi töflu er fjöldi hrossa sem kom til dóms í hverjum aldurs- og kynflokki:
| Stóðhestar | Hryssur | |
| 4 vetra | 96 | 97 |
| 5 vetra | 164 | 222 |
| 6 vetra | 105 | 243 |
| 7 vetra og eldri | 73 | 265 |
Klárhross voru 32% sýndra hrossa í ár en það er heldur lægra hlutfall samanborið við árið í fyrra en þá var hlutfall klárhrossa 34%. Þetta hlutfall hefur farið hækkandi á síðastliðnum árum en lengi vel var þetta um fjórðungur sýndra hrossa sem voru klárhross. Aðal skýringin er líklega sú að fleiri ákveða að sýna ekki skeið í hrossum sem hafa takmarkaða skeiðgetu enda hefur einkunnum 5,5 til 6,5 farið heldur fækkandi undanfarin ár. Þó hlutfall klárhrossa fari hækkandi er staða skeiðsins sterk um þessar mundir en meðaltal skeiðs fer hækkandi eins og annarra eiginleika. Afar mörg flugvökur hross voru sýnd á árinu og 258 hross fóru í 8,5 eða hærra fyrir skeið eða 23% sýndra hrossa og hefur þetta hlutfall aldrei verið hærra. Þá voru 116 hross sem fengu 9,0 eða hærra í einkunn fyrir skeið.
293 feður voru á bak við sýnd hross í ár og í meðfylgjandi töflu er yfirlit yfir þá stóðhesta sem skiluðu sex eða fleiri hrossum til dóms:
| Stóðhestur | Fjöldi |
| Skýr frá Skálakoti | 73 |
| Þráinn frá Flagbjarnarholti | 67 |
| Álfaklettur frá Syðri-Gegnishólum | 49 |
| Kveikur frá Stangarlæk 1 | 49 |
| Draupnir frá Stuðlum | 33 |
| Adrían frá Garðshorni á Þelamörk | 31 |
| Hrannar frá Flugumýri II | 29 |
| Viðar frá Skör | 27 |
| Blakkur frá Þykkvabæ I | 23 |
| Pensill frá Hvolsvelli | 19 |
| Spuni frá Vesturkoti | 18 |
| Safír frá Mosfellsbæ | 18 |
| Hannibal frá Þúfum | 17 |
| Óskasteinn frá Íbishóli | 16 |
| Skaginn frá Skipaskaga | 16 |
| Ísak frá Þjórsárbakka | 16 |
| Eldjárn frá Skipaskaga | 15 |
| Veigar frá Skipaskaga | 15 |
| Ljósvaki frá Valstrýtu | 13 |
| Glúmur frá Dallandi | 12 |
| Apollo frá Haukholtum | 12 |
| Kjuði frá Dýrfinnustöðum | 12 |
| Skarpur frá Kýrholti | 12 |
| Trymbill frá Stóra-Ási | 11 |
| Dagfari frá Álfhólum | 11 |
| Sólon frá Þúfum | 11 |
| Útherji frá Blesastöðum 1A | 11 |
| Leynir frá Garðshorni á Þelamörk | 11 |
| Loki frá Selfossi | 10 |
| Forkur frá Breiðabólsstað | 10 |
| Gaumur frá Auðsholtshjáleigu | 9 |
| Kiljan frá Steinnesi | 9 |
| Hringur frá Gunnarsstöðum | 9 |
| Organisti frá Horni | 9 |
| Rauðskeggur frá Kjarnholtum I | 9 |
| Sigur frá Stóra-Vatnsskarði | 9 |
| Styrkur frá Leysingjastöðum II | 9 |
| Stáli frá Kjarri | 8 |
| Knár frá Ytra-Vallholti | 8 |
| Sjóður frá Kirkjubæ | 8 |
| Jarl frá Árbæjarhjáleigu II | 8 |
| Hreyfill frá Vorsabæ II | 8 |
| Þór frá Stóra-Hofi | 8 |
| Ómur frá Kvistum | 7 |
| Hákon frá Ragnheiðarstöðum | 7 |
| Arion frá Eystra-Fróðholti | 7 |
| Vökull frá Efri-Brú | 7 |
| Dofri frá Sauðárkróki | 7 |
| Fenrir frá Feti | 7 |
| Ölnir frá Akranesi | 6 |
| Brimnir frá Efri-Fitjum | 6 |
| Lexus frá Vatnsleysu | 6 |
| Álfarinn frá Syðri-Gegnishólum | 6 |
| Vákur frá Vatnsenda | 6 |
| Konsert frá Hofi | 6 |
| Herkúles frá Ragnheiðarstöðum | 6 |
| Sægrímur frá Bergi | 6 |
| Þór frá Torfunesi | 6 |
| Spaði frá Stuðlum | 6 |
| Gljátoppur frá Miðhrauni | 6 |
| Atli frá Efri-Fitjum | 6 |
Nýtt fyrirkomulag með sköpulagsdóma
Ný regla tók gildi í ár með sköpulagsdóma. Hross sem komu til dóms fjögurra og fimm vetra þurftu að koma til sköpulagsdóms áður en þau gátu komið í reiðdóm eins og verið hefur. Fyrir hross sem höfðu hlotið dóm á sköpulaginu fimm vetra gömul var sköpulagsdómur aftur á móti valkvæður. Alls voru reiðdómarnir á árinu 313 (fyrir utan Landsmót) og ljóst að þetta nýja fyrirkomulag var töluvert nýtt strax á fyrsta ári. Hlutfall reiðdóma af öllum dómum á hverri sýningu var á bilinu 5 til 52%, reiðdómum fjölgaði hlutfallslega er leið á árið en meðaltalið var um 22% á öllum sýningum. Ef fram heldur sem horfir mun þetta hafa áhrif á skipulag sýningarhaldsins til framtíðar, við munum til dæmis geta nýtt sýningarvikurnar betur og dæmt fleiri hross á viku.
Tíur ársins
Hestakosturinn sem sýndur var á árinu var hreint magnaður og alls fóru ellefu hross yfir 9.00 fyrir hæfileika sem er algjört met. Gaman er að rifja upp þau hross sem fengu 10 fyrir einstaka eiginleika á árinu. Fyrstan er að telja Tinna frá Árdal, undan Kveik frá Stangarlæk 1 og Þrumu frá Árdal en hann braut blað í íslenskri hrossarækt með því að vera fyrsta hrossið í sögunni til að hljóta 10 fyrir háls, herðar og bóga; einstaklega glæsilegur hestur og alhliða gæðingur í þokkabót. Þrettán hross fengu 10 fyrir prúðleika. Þá hlutu hvorki meira né minna en sex hross 10 fyrir tölt á árinu en aldrei hafa svo mörg hlotið 10 fyrir tölt á einu ári. Það hafa komið ár sem allt að 6 hross hafa fengið 10 fyrir skeið til dæmis og það ætti ekki að koma á óvart að það komi að ári þar sem nokkur hross fái 10 fyrir tölt en langhæst vægi hefur verið á þeim eiginleika í yfir 20 ár. Fyrsta er að telja Nótt frá Tjaldhólum en hún er undan Skarpi frá Kýrholti og Sýn frá Árnagerði. Nótt hlaut 9,5 fyrir tölt fyrir tveimur árum þá fjögurra vetra gömul og er einstaklega mjúk, léttstíg og flink á tölt og minnir um margt á ömmu sína, Skruggu Rökkvadóttur frá Kýrholti sem var orkumikil og sporlétt. Hrammur frá Brautarholti hlaut 10 fyrir tölt og er undan Veigari frá Skipaskaga og Örðu frá Brautarholti, Svein-Hervarsdóttur. Hrammur er afar skrefmikill, skrokkmjúkur hestur með háar og fallegar hreyfingar. Þá hlaut Sparta frá Eystra-Fróðholti 10 fyrir tölt, undan Rauðskeggi frá Kjarnholtum I og gæðingarmóðurinni Spá frá Eystra-Fróðholti. Sparta er einstaklega flink og fjaðurmögnuð á tölti en hún hlaut einnig 10 fyrir hægt tölt, alltaf há að framan og mjúk. Aspar frá Hjarðatúni hlaut 10 fyrir tölt á vorsýningu og stóð við það eftirminnilega á Landsmóti; einstakur styrkur í þeim hesti á tölti á öllum hraðastigum en hann hlaut einnig 10 fyrir hægt tölt. Aspar er undan Boða frá Breiðholti í Garðabæ og Hrund frá Ragnheiðarstöðum. Baldvin frá Margrétarhofi hlaut 10 fyrir tölt á Landsmóti, undan Kveik frá Stangarlæk 1 og Glettu frá Margrétarhofi, Rökkvadóttur. Baldvin býr yfir einstöku fjaðurmagni og mýkt og er afar sjálfberandi á tölti. Röðull frá Haukagili í Hvítársíðu hlaut 10 fyrir tölt en hann er undan Arion frá Eystra-Fróðholti og Sunnu frá Steinnesi, heiðursverðlaunahryssu og er hún ekki síst að skila frá sér gæðatölti. Röðull býr yfir mikilli mýkt og burði, hefur verið að eflast ár frá ári og ræður nú einstaklega vel við sig á tölti en hann hlaut einnig 10 fyrir hægt tölt. Þá hlaut Seytla frá Íbishóli 10 fyrir hægt tölt en hún er undan Óskasteini frá sama bæ og Seylu frá Efra-Langholti sem var undan Miska frá Miðdal. Seytla á einstaklega auðvelt með að hringa sig upp á hægu og ganga í jafnvægi, fjaðurmögnuð og mjúk. Tveir hestar hlutu 10 fyrir brokk, þeir Miðill frá Hrafnagili og Aspar frá Hjarðartúni. Miðill er undan Auði frá Lundum og Gígju frá Búlandi, Hrymsdóttur og er stórmagnaður klárhestur með virkjamikla framgöngu. Tvö hross hlutu 10 fyrir skeið á árinu; þau Svartur frá Vöðlum og Ramóna frá Heljardal. Svartur er undan Kveik frá Stangarlæk 1 og Nótt frá Oddsstöðum en það var flugvökur hryssa og hlaut 9,5 fyrir skeið á sínum tíma. Ramóna er undan Draupni frá Stuðlum og Auði frá Hofi, Hróðursdóttur. Tvö hross hlutu 10 fyrir greitt stökk. Það gerði fyrrgreindur Aspar frá Hjarðartúni, enda stórmagnaður hestur. Móna frá Þúfum er hitt hrossið, undan Blundi frá Þúfum og Myrkvu frá Torfunesi; kattmjúk og sprúðlandi af teygju og tápi á greiðu stökki. Sjö hross hlutu 10 fyrir samstarfsvilja á árinu. Sparta frá Eystra-Fróðholti hlaut 10 fyrir samstarfsvilja enda afar taumlétt, viljug og jákvæð. Hugsýn frá Ketilsstöðum hlaut einnig 10 fyrir þennan eiginleika, einstakt geðprýðis- og viljahross undan Álfakletti frá Syðri-Gegnishólum og Hugrökk frá Ketilsstöðum. Brynja frá Nýjabæ hlaut 10 fyrir samstarfsvilja og er hún undan Gljátoppi frá Miðhrauni og Gunnvöru frá Bæ 2, Aðalsdóttur Nýjabæjar. Brynja er viljug og samstarfsfús og gæðingur á gangi. Þá hlutu þau fyrrgreind Miðill frá Hrafnagili, Röðull frá Haukagili á Hvítársíðu, Seytla frá Íbishóli og Nótt frá Tjaldhólum einnig 10 fyrir samstarfsvilja og eiga það sameiginlegt að vera þjál og orkumikil gæðingshross. Dögg frá Kvistum hlaut 10 fyrir hægt stökk, undan hinum einstaka kynbótahesti Kveik frá Stangarlæk 1 sem á fjögur hross í þessari upptalningu sem er hreint magnað. Dögg hlaut einnig 10 fyrir hægt stökk í fyrra og er afbrigði á þessari gangtegund; eins og gormur á leið upp í himinhvolfið. Þá hlaut Álfadís frá Höskuldsstöðum 10 fyrir fet en hún er undan Álfakletti frá Syðri-Gegnishólum og Grósku frá Garðshorni á Þelamörk. Álfadís er afar mjúk og skrefmikil á feti með sterka yfirlínu en faðir hennar er að gefa afar jafnvíg gæða ganghross og einmitt mjög gott fet.
Heilbrigðisskoðanir kynbótahrossa.
Heilbrigði kynbótahrossa var skoðað eins og undanfarin ár, bæði fyrir og eftir dóm. Allir áverkar sem hrossin hlutu í dómi voru stigaðir í þrjá flokka og átti þetta við bæði særindi í munni og ágrip á fótum. Fyrsta stigs athugasemdir teljast ekki vera eiginlegir áverkar en eru t.d. særindi í munni sem ná ekki í gegnum slímhúð eða strokur á fótum sem ná ekki í gegnum húð og eru án eymsla eða bólgu. Annars stigs athugasemdir eru áverkar, s.s. lítil sár í munni eða á ágrip á fótum sem ná þó ekki einum cm. Þriðja stigs athugasemdir eru alvarlegir áverkar og á þá lund að hrossið hlýtur ekki reiðdóm og getur ekki mætt til yfirlitssýningar. Skráð voru ágrip á fótum í 14,6% tilfella sem er aðeins hærra en var í fyrra en þá var tíðni ágripa 13% og er þetta fyrsta árið í mörg ár sem tíðni áverka fer ekki lækkandi. Megnið af þessum athugasemdum eða 67% voru í flokki 1, tíðni eiginlegra áverka á fótum (flokkar 2 og 3) var því 4,4% (var 4% í fyrra) þar sem áverkar af þriðja stigi voru tiltölulega fáir (6 hross). Þá voru skráð særindi eða blóð í munni í 4% tilfella og er það einnig aukning frá því í fyrra en þá voru skráð særindi í munni í 3% tilfella. Í lang flestum tilfellum var um 1. stigs særindi að ræða en af 65 tilfellum var um eitt tilfelli að ræða af öðru stigi og eitt tilfelli af þriðja stigs áverka sem olli því að hrossið hlaut ekki dóm. Það má því segja að staðan á þessum málum sé ásættanleg þar sem tíðni eiginlegra áverka er frekar lág. Hækkun á tilfellum áverka er þó umhugsunarefni og spurning hvort þurfi að taka þetta málefni á dagskrá með einhverjum hætti aftur. Það er reynt að taka á grófri reiðmennsku á hverju ári en það var einn knapi sem hlaut áminningu fyrir grófa reiðmennsku á árinu
Eistnaskoðun stóðhesta
Eistnaskoðun var framkvæmd á öllum stóðhestum sem komu til dóms þar sem mæld er stærð eistnanna, stinnleiki þeirra metin og kannað með frávik svo sem snúninga. Þéttleiki eistna er metinn í þremur flokkum þar sem flokkur I var þétt og eðlilegt, II aðeins lin og flokkur III afar lin og veldur rauðu T-i í WorldFeng. Mikill meiri hluti stóðhestanna er með þétt og eðlileg eistu eða tæplega 90% hestanna. Þá var restin af hestunum með stinnleika II og einn hestur með stinnleika III. Merkt var við eistnagalla hjá 10 stóðhestum á árinu, samanborið við þrjá hesta í fyrra og sex hesta árið 2024 (sjö stóðhestar árið 2018 og 13 hestar árið 2016). Um of mikla smæð var að ræða (heildarbreidd beggja eistna undir 8.0 cm) í fimm tilfellum og misstór eistu að ræða í einu tilfelli. Fjórir hestur voru eineistungar. Ef meðaltal á heildarbreidd eistna er skoðað, þá kemur í ljós að það er 10,22 cm ár, var 10,03 cm í fyrra og staðalfrávikið er um 1,2 cm. Þessar stærðir hafa ekki breyst neitt að ráði í 20 ár, þróunin er heldur á uppleið og því ljóst að eistu íslenskra stóðhesta eru ekki að minnka að meðaltali sem er vel.
Starfsfólk og staðarhaldarar
Að lokum vil ég færa öllu starfsfólki kynbótasýninganna í ár mínar bestu þakkir fyrir vel unnin störf. Að stórum hluta er um að ræða sama góða hópinn ár eftir ár og hefur myndast góð reynsla innan hans, hvort sem um er að ræða dómara, sýningarstjóra eða ritara. Ég vil jafnframt þakka staðarhöldurum á öllum sýningarstöðunum fyrir gott samstarf. Verkefninu hefur alls staðar verið tekið af áhuga og metnaði og lögð áhersla á að skapa sem bestar aðstæður og tryggja að allir þættir sýninganna gangi sem best. Síðast en ekki síst vil ég þakka sýnendum, ræktendum og eigendum hrossanna fyrir ánægjuleg samskipti og gott samstarf á árinu.
Höfundur: Þorvaldur Kristjánsson

Tinni frá Árdal varð fyrsta hrossið í sögunni til að hljóta 10 fyrir háls, herðar og bóga; fegurðar- og útgeislunardjásn.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson