FEIF Konráð og Kjarkur á toppnum á stöðulista ársins í 150m skeiði

  • 20. nóvember 2026
  • Fréttir

Konráð Valur og Kjarkur í 150 metra skeiði á Landsmóti árið 2026. Ljósmynd: Freydís Bergsdóttir

Tveir knapar með meðaltíma undir 14 sekúndum

Á vefsíðu FEIF er stöðulisti ársins (e. annual ranking) í 150 metra skeiði (P3) aðgengilegur. Listinn byggir á árangri knapa og hesta á alþjóðlegum mótum (WorldRanking) á árinu, þar sem tveir bestu tímar parsins eru lagðir saman og meðaltal þeirra ræður röðuninni.

Efstir á stöðulistanum í 150 metra skeiði eru Landsmótssigurvegarar árins Konráð Valur Sveinsson og Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II með meðaltíma upp á 13,830 sekúndur (13,82 og 13,84). Konráð Valur heldur því áfram að raða sér í allra fremstu röð skeiðknapa heimsins, en hann vermir einnig toppsætið í 250m skeiði á Kastori frá Garðhorni á Þelamörk.

Í öðru sæti fylgja fast á hæla þeirra Íslandsmeistarinn Teitur Árnason og Hátíð frá Sumarliðabæ 2 með meðaltímann 13,915 sekúndur (13,88 og 13,95). Þau eru jafnframt annað af aðeins tveimur pörum á listanum sem ná meðaltíma undir 14 sekúndum.

Í þriðja sæti situr þýska parið Steffi Plattner og Tangó frá Litla-Garði með 14,070 sekúndur, en þau áttu meðal annars besta tíma ársins á listanum upp á 13,47 sekúndur.

Topp 10 á stöðulista ársins í 150m skeiði (P3):
  1. Konráð Valur Sveinsson / Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II (IS) – 13,830 sek. (13,82 ; 13,84)
  2. Teitur Árnason / Hátíð frá Sumarliðabæ 2 (IS) – 13,915 sek. (13,88 ; 13,95)
  3. Steffi Plattner / Tangó frá Litla-Garði (DE) – 14,070 sek. (13,47 ; 14,67)
  4. Hans Þór Hilmarsson / Vorsól frá Stóra-Vatnsskarði (IS) – 14,205 sek. (14,03 ; 14,38)
  5. Sigurbjörn Bárðarson / Vökull frá Tunguhálsi II (IS) – 14,250 sek. (14,13 ; 14,37)
  6. Julian Juraschek / Glæsir vom Uhlenhof (DE) – 14,460 sek. (14,29 ; 14,63)
  7. Helga Una Björnsdóttir / Salka frá Fákshólum (IS) – 14,510 sek. (14,51 ; 14,51)
    8.–9.Daníel Ingi Smárason / Hrafn frá Hestasýn (SE) – 14,515 sek. (14,29 ; 14,74)
    8.–9. Siggi Narfi Birgisson / Sneis frá Ytra-Dalsgerði (DE) – 14,515 sek. (14,23 ; 14,80)
    10 . Sigurður Vignir Matthíasson / Tryggur frá Selfossi (IS) – 14,520 sek. (14,30 ; 14,74)

Stöðulistann í heild sinni má nálgast á vef FEIF.

________________________________________________________________

Kjarkur hefur verið einn besti skeiðhestur heims um langt skeið og unnið til margra titla ásamt knapa sínum Konráði Vali Sveinssyni. Kjarkur er undan Gídeon frá Lækjarbotnum og Heklu frá Skarði en Hekla, móðir hans var felld nú á haustdögum 26.vetra að aldri. Hún var sýnd í 4.vetra flokki á LM árið 2024 og átti 20 afkvæmi um dagana. Þeirra frægast er án efa Kjarkur en nokkur systkini hans hafa hlotið 1.verðlaun í kynbótadómi og/eða komið fram í keppni.

Við þessa frétt af Kjarki og við fall Heklu, þótti því við hæfi að deila einni mynd af þeim Kristni Guðnasyni og Marjolijn Tiepen í Árbæjarhjáleigu og Heklu skömmu áður en hún var felld. Þau ræktuðu hryssuna og áttu með Guðmundur Þór Þórhallssyni.

Kristinn og Marjolijn í Árbæjarhjáleigu með Heklu, móður Kjarks, á milli sín.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link