Heiðursverðlaunahryssur á Íslandi 2026

  • 3. október 2026
  • Fréttir

Spá frá Eystra-Fróðholti stendur efst heiðursverðlaunahryssna og hlýtur Glettubikarinn í ár.

Alþjóðlega kynbótamatið fyrir íslenska hestinn var reiknað í september að loknum kynbótasýningum og birt í WorldFeng. Því er orðið ljóst að sextán hryssur á Íslandi hljóta heiðursverðlaun fyrir afkvæmi í ár en til að hljóta verðlaunin þarf hryssan að eiga að lágmarki fimm dæmd afkvæmi og vera með 116 stig í aðaleinkunn, eða aðaleinkunn án skeiðs í kynbótamatinu. Nokkrar af hryssunum eru jafnar að stigum og eru það því aukastafir í aðaleinkunn sem raða þeim í sæti.

Efsta hryssan í ár er Spá frá Eystra-Fróðholti með 129 stig í aðaleinkunn kynbótamatsins og á nú fimm dæmd afkvæmi. Spá hlýtur því Glettubikarinn í ár sem er farandgripur veittur efstu heiðursverðlaunahryssu ársins. Hún er brún að lit undan Sæ og Glettu frá Bakkakoti og er því af þessu stórmerkilega kyni þeirra Ársæls Jónssonar og Önnu Fíu Finnsdóttur sem hefur skilað óvenjulegum gæðingum í gegnum tíðina. Spá var sjálf gæðingur og afar eftirminnileg á Landsmóti 2011 fyrir mýkt og fjaðurmagn. Hún stóð svo efst í sex vetra flokki hryssna á Landsmóti 2012 með 9,03 fyrir hæfileika og 8,64 í aðaleinkunn. Spá á nú fimm dæmd afkvæmi. Hæst dæmda afkvæmi hennar er Sparta frá Eystra-Fróðholti undan Rauðskegg frá Kjarnholtum I og stóð hún efst á Landsmóti nú í sumar í elsta flokki hryssna; einn mesti gæðingur sögunnar með 9,35 fyrir hæfileika. Þá var sýndur í sumar fjögurra vetra foli undan Spá, Herskár að nafni undan Óskasteini frá Íbishóli. Herskár er náttúrubarn á gangi og hlaut 8,69 fyrir hæfileika sem var hæsta hæfileikaeinkunn sem fjögurra vetra foli hlaut á árinu. Öll afkvæmi Spáar hafa hlotið fyrstu verðlaun.

Í öðru sæti er Flauta frá Einhamri með 127 stig í aðaleinkunn kynbótamatsins og fimm dæmd afkvæmi. Flauta er grá að lit undan Stála frá Kjarri og Gustu frá Litla-Kambi, Gustsdóttur frá Hóli. Ræktendur Flautu eru Hjörleifur Jónsson og Sif Ólafsdóttir og eigandi er Svarthöfði-Hrossarækt ehf. Flauta var gæðingur á gangi með 8,80 fyrir hæfileika og er óspar á þá í framræktun. Þrjár dætur hennar voru sýndar á Landsmóti í sumar; þær Nóta undan Spuna frá Vesturkoti og Ragna frá Sumarliðabæ 2 undan Rauðskegg frá Kjarnholtum I og eru þær skrefmiklir og magnaðir gæðingar. Þá er Tónlist frá Sumarliðabæ 2 dóttir hennar undan Þráni frá Flagbjarnarholti og er það afar efnileg fjögurra vetra hryssa. Öll afkvæmi Flautu eru með fyrstu verðlaun og ljóst að hérna er á ferðinni úrvals ræktunarhryssa. 

Í þriðja sæti er Katla frá Feti með 124 stig. Hún er brún að lit undan Kiljani frá Steinnesi og Grétu frá Feti en sú er undan Þristi frá Feti og Gerðu frá Gerðum, Baldursdóttur. Ræktandi er Hrossaræktarbúið Fet ehf og eigendur eru Kvíarhóll ehf og Helgi Eggertsson. Katla er framfalleg og fjölhæf alhliða hryssa með 8,39 í aðaleinkunn og var sýnd á Landsmóti 2016 á Hólum. Tvær dætur Kötlu voru á Landsmóti í sumar. Hæst dæmda afkvæmi hennar er Skák frá Feti undan Þráni frá Flagbjarnarholti. Það er vel gerð hryssa; fótahá með sterka yfirlínu og þá ber hún sig vel í reið með 8,5 fyrir tölt og fegurð í reið og 9,0 fyrir skeið. Þá var dóttir Kötlu Þórkatla frá Feti einnig á Landsmóti í sumar fjögurra vetra gömul. Hún er undan Þór frá Stóra-Hofi, falleg og fínleg hryssa og flugefnileg á gangi. Öll afkvæmi Kötlu hafa hlotið fyrstu verðlaun. 

Fjórða í röð er Gleði frá Hemlu II. Hún er jörp að lit undan Mjölni frá Hlemmiskeiði 3 og Hafrúnu frá Hemlu en sú var undan Óði frá Brún og Andvaradótturinni Gná frá Hemlu. Ræktendur eru Lovísa Herborg Ragnarsdóttir, Vignir Siggeirsson og Þorbergur Vignisson og eigendur eru Vignir og Lovísa. Gleði er fínleg, framfalleg og léttbyggð hryssa með mikið skref og rúmar gangtegundir. Hún hefur reynst afar vel til ræktunar. Dóttir hennar Sigurrós frá Hemlu undan Forki frá Breiðabólsstað er með 8,59 í aðaleinkunn, fallegur gæðingur. Þá var sýndur undan henni flugefnilegur hestur í sumar sem heitir Glaumur frá Hemlu, undan Álfakletti frá Syðri-Gegnishólum. Það er afar fríður, fínlegur og vel gerður hestur sem verður gaman að fylgjast með til framtíðar. Öll afkvæmi Gleði eru með fyrstu verðlaun og er hún með 121 stig í kynbótamatinu.

Fimmta er Stefna frá Torfunesi með 121 stig í kynbótamatinu. Hún er brún að lit undan Vita frá Kagaðarhóli og Bylgju frá Torfunesi, Baldursdóttur. Ræktandi og eigandi hennar er Torfunes ehf. Stefna var með afar hátt settan háls og aðgreinda bóga og bjó yfir mýkt og fjaðurmagni á gangi. Hún var sýnd fjögurra vetra gömul og stóð efst á Landsmóti á Hólum árið 2016. Hún á nú fimm dæmd afkvæmi. Hæst dæmda afkvæmi hennar er Kempa frá Torfunesi, undan Sólon frá Þúfum, með 8,47 í aðaleinkunn. Þá voru tvær dætur hennar á Landsmóti í sumar, þær Klöpp og Kyrrð. Klöpp er alhliða gæðingur undan Hannibal frá Þúfum og þá er Kyrrð frá Torfunesi undan Drangi frá Steinnesi fjögurra vetra; afar vel gerð og efnileg á gangi og á eftir að láta meira að sér kveða síðar. Öll afkvæmi Stefnu eru með fyrstu verðlaun.

Í sjötta sæti er Dögun frá Hjarðartúni með 121 stig. Hún er móbrún að lit undan Aroni frá Strandarhöfði og heiðursverðlaunahryssunni Dögg frá Breiðholti í Garðabæ. Ræktandi Dögunar eru Óskar Eyjólfsson og eigendur eru Einhyrningur ehf, Bjarni Elvar Pétursson og Kristín Heimisdóttir. Dögun er mýktar alhliða hryssa, fínleg reist og fótahá og hefur reynst afar vel til ræktunar. Hæst dæmda afkvæmi hennar er Sindri frá Hjarðartúni, undan Stála frá Kjarri. Hann stóð efstur í elsta flokki stóðhesta á Landsmóti árið 2022 og vann A-flokk gæðinga á Landsmóti í sumar; úrvals alhliða gæðingur. Þá er Svala frá Hjarðartúni, undan Hrók frá sama bæ, fyrstu verðlauna hryssa; þurrbyggð og léttstíg alhliða hryssa. Svaði sonur hennar og Hrings frá Gunnarsstöðum er fyrstu verðlauna klárhestur með 9,5 fyrir brokk meðal annars. Það er því ljóst að Dögun hefur verið að skila eigendum sínum frábærum afkvæmum.

Sjöunda í röð er Sara frá Stóra-Vatnsskarði með 119 stig. Hún er rauð að lit undan Orra frá Þúfu í Landeyjum og hinni mögnuðu Lukku frá Stóra-Vatnsskarði. Ræktendur eru Benedikt G. Benediktsson og Hans Þór Hilmarsson og eigendur eru Hans Þór og Einhyrningur ehf. Sara var sjálf stórgóð hryssa; afar fríð og framfalleg, með 9,5 fyrir höfuð og háls, herðar og bóga. Þá var hún hreyfingamikil og hafði til að bera mikla útgeislun með 9,5 í einkunn fyrir tölt og fegurð í reið. Hún á nú fimm dæmd afkvæmi. Hennar hæst dæmda afkvæmi er Dögg frá Hjarðartúni, undan Kveik frá Stangarlæk 1. Það er afar fríð og falleg hryssa, léttstíg, flink og flugrúm á tölti. Þá er Safír frá Hjarðartúni, undan Skýr frá Skálakoti, mikill mýktartöltari, léttviljugur og skemmtilegur hestur með 9,5 fyrir tölt og 9,0 fyrir samstarfsvilja og fegurð í reið. 

Áttunda er Gleði frá Kaldbak með 118 stig í kynbótamatinu. Hún er brún að lit, undan Blæ frá Torfunesi og Bendingu frá Kaldbak sem var undan Jöfri frá Syðra-Langholti. Ræktandi og eigandi er Sigmundur Jóhannesson. Gleði var sjálf rúm og flugvökur hryssa með 9,0 fyrir tölt og skeið og hefur nú gefið fimm fyrstu verðlauna hross. Þeirra hæst dæmd er Sunna frá Syðra-Langholti, undan Pensli frá Hvolsvelli; jafnvíg alhliða hryssa með 8,34 í aðaleinkunn. Þá er Gleði öflug að skila frábæru skeiði en tvær dætur hennar, þær Sæld undan Ópal frá Miðási og Kátína undan Geisla frá Sælukoti eru með 9,5 fyrir skeið og Kilja undan Kiljan frá Steinnesi og Sæmd undan Trymbli frá Stóra-Ási með 9,0 fyrir skeið. 

Í níunda sæti er Ömmustelpa frá Ásmundarstöðum 3 með 117 stig í aðaleinkunn kynbótamatsins. Hún er sótrauð, tvístjörnótt að lit, undan Arði frá Brautarholti og Gullhettu frá Ásmundarstöðum en sú er undan Kyndli frá Kirkjubæ og Siggu-Brúnku frá Ásmundarstöðum. Ömmustelpa var sjálf öflug alhliða hryssa, afar fríð og framfalleg með klipna kverk eins og svo mörg hross útaf Höfða-Gusti. Hennar hæst dæmda afkvæmi er Ögri frá Ásmundarstöðum 3, fimm vetra gamall undan Sóloni frá Þúfum; fallegur hestur og efni í alhliða gæðing. Þá er Özur, undan Sjóði frá Kirkjubæ, afar myndarlegur og magnaður mýktartöltari en hann hlaut 9,5 fyrir tölt. Þá hefur sonur hennar Lazarus frá Ásmundarstöðum 3 verið í fremstu röð fimmgangara á Íslandi undanfarið og varð Íslandsmeistari í þeirri grein í sumar. 

Í tíunda sæti er Ríma frá Auðsholtshjáleigu með 116 stig og fimm dæmd afkvæmi. Hún er brún að lit undan Gaumi frá Auðsholtshjáleigu og Limru frá Laugarvatni. Ríma er stórmyndarleg og reist alhliða hryssa og hlaut sjálf 8,49 í aðaleinkunn. Hennar hæst dæmda afkvæmi er Rödd frá Auðsholtshjáleigu, undan Hrannari frá Flugumýri II með 8,44 í aðaleinkunn, eðlishágeng og mjúk alhliða hryssa. Þá er Hamar frá Auðsholtshjáleigu, undan Álfakletti frá Syðri-Gegnishólum afar fallegur, reistur og efnilegur stóðhestur og var á meðal hæst dæmdu fjögurra vetra stóðhesta sumarsins. 

Í ellefta sæti er Þruma frá Árdal með 116 stig og fimm dæmd afkvæmi. Hún er brún að lit undan Aðli frá Nýjabæ og Eldingu frá Árdal en sú var undan Svarti frá Unalæk. Ræktandi og eigandi Þrumu er Pétur Jónsson á Hvanneyri. Þruma var sjálf mýktar alhliða hryssa með reistan, hátt settan háls og hlaut 8,38 í aðaleinkunn. Hæst dæmda afkvæmi hennar er hinn stórmerkilegi Tinni frá Árdal, undan Kveik frá Stangarlæk 1. Hann var hæst dæmdi fimm vetra stóðhestur ársins, glæsilegur alhliða gæðingur og varð fyrsta hrossið í sögunni til að hljóta einkunnina 10 fyrir háls, herðar og bóga. Þá er Tindur frá Árdal, undan Ljósvaka frá Valstrýtu, fótahár og fallegur alhliða hestur. Öll afkvæmi Þrumu hafa hlotið fyrstu verðlaun og þrjú þeirra 8,50 eða hærra fyrir hæfileika.

Í tólfta sæti er Elding frá Oddsstöðum I í Lundareykjadal með 116 stig og fimm dæmd afkvæmi. Elding er rauð að lit undan Kvisti frá Skagaströnd og Brák frá Oddsstöðum I en sú var undan Kanslara frá Efri-Rauðalæk og útaf Gáska frá Hofsstöðum í móðurætt. Ræktandi Eldingar er Sigurður Oddur Ragnarsson. Elding var sjálf virkjamikil klárhryssa með 8,5 fyrir tölt og 9,0 fyrir bæði brokk og stökk. Hæst dæmda afkvæmi hennar er Hrafn frá Oddsstöðum I, undan Vita frá Kagaðarhóli. Það er vel gerður og stórfallegur hestur með 8,98 fyrir sköpulag og hlaut 9,5 fyrir flesta þætti hæfileikanna; fjaðurmagnaður og framhár. Þá er Sigð frá Oddsstöðum næm og léttstíg klárhryssa undan Konsert frá Hofi en hún hlaut 9,0 fyrir tölt og 9,5 fyrir brokk. 

Þrettánda í röð er Maístjarna frá Lundi með 114 stig í aðaleinkunn kynbótamatsins en hún er með 120 stig í aðaleinkunn án skeiðs, og fimm dæmd afkvæmi. Hún er rauðstjörnótt glófext að lit undan Gusti frá Hóli og Halastjörnu frá Lundi en sú var undan Huga frá Hafsteinsstöðum og Eldingu frá Lundi sem var aftur undan Bjarti frá Egilsstaðabæ. Ræktandi er Sigurhans Þ. Jónsson. Maístjarna var mögnuð klárhryssa sjálf, með sterka yfirlínu og hlaut 9,0 fyrir tölt, brokk og fegurð í reið meðal annars. Hæst dæmda afkvæmi hennar er fjögurra vetra foli sem kom fram í sumar, Andvari frá Lundi, undan Vökli frá Efri-Brú. Andvari hlaut 9,0 fyrir tölt og samstarfsvilja. Þá er sonur hennar Kveikur frá Lundi, klárhestur með flotta framgöngu undan Blundi frá Þúfum en hann hlaut meðal annars 9,0 fyrir fegurð í reið í dómi.

Í fjórtánda sæti er Grund frá Grund II með 114 stig í aðaleinkunn kynbótamatsins en hún er með 117 stig í aðaleinkunn án skeiðs, og fimm dæmd afkvæmi. Ræktandi er Gunnar Egilsson og eigandi er Örn Stefánsson. Grund er undan Andvara frá Ey I og Glímu frá Vindheimum en sú var undan Mekki frá Varmalæk. Grund var sjálf myndarleg, sterkbyggð og skrefmikil klárhryssa. Hæst dæmda afkvæmi hennar er Glíma frá Grund II, undan Glúmi frá Dallandi. Það er hágeng og virkjamikil afrekshryssa á gangi og stóð efst í fimm vetra flokki hryssna á Landsmótinu í sumar. Gyðja frá Grund II, undan Ísak frá Þjórsárbakka, er stórfalleg alhliða hryssa með 8,60 í aðaleinkunn. Þá er Perla frá Grund II undan Draupni frá Stuðlum fótahá og framfalleg úrvals klárhryssa með 9,0 fyrir tölt og 9,5 fyrir hægt stökk; framhá og fjaðrandi í framgöngu. 

Í fimmtánda sæti er Gola frá Þjórsárbakka með 114 stig í aðaleinkunn kynbótamatsins en hún er með 122 stig í aðaleinkunn án skeiðs, og fimm dæmd afkvæmi. Hún er rauðtvístjörnótt að lit undan Andvara frá Ey og Eldingu frá Hóli sem var heiðursverðlaunahryssa undan Hrynjanda frá Hrepphólum. Ræktandi og eigandi er Þjórsárbakki ehf. Gola var sjálf eðlishágeng og aðsópsmikil klárhryssa með 9,0 fyrir flesta þætti hæfileikanna og 9,5 fyrir hægt tölt. Hæst dæmda afkvæmi hennar er Auðlind frá Þjórsárbakka, undan Loka frá Selfossi en það er úrvals gæðingur með háan kynbótadóm og einnig góðan árangur í keppni. Eldey frá Þjórsárbakka undan Álfi frá Selfossi og Sigurrós frá Þjórsárbakka undan Framherja frá Flagbjarnarholti eru frábærar klárhryssur og ljóst að Gola hefur skilað sínum góðu kostum áfram til afkvæma sinna. 

Þá er hryssan sem er sextánda í röð Planta frá Skrúð með 111 stig í aðaleinkunn kynbótamatsins en hún er með 116 stig í aðaleinkunn án skeiðs og á sex dæmd afkvæmi. Planta er brún að lit undan Blæ frá Torfunesi og Sunnu frá Skrúð. Ræktandi er Sigfús K. Jónsson og eigandi er Susanne Braun. Planta er stólpamyndarleg hryssa með 9,0 fyrir bæði háls, herðar og bóga og samræmi og var skrefmikil, hreingeng, mjúk og rúm klárhryssa. Hæst dæmda afkvæmi hennar er Blóma frá Dvergasteinum, undan Styrk frá Leysingjastöðum II. Hún var sýnd fimm vetra gömul; stór og falleg hryssa eins og móðirin og hlaut 8,5 fyrir flesta þætti hæfileikanna. Álfarós frá Dvergasteinum, undan Álfakletti frá Syðri-Gegnishólum var einnig sýnd fimm vetra gömul með 9,0 fyrir tölt og samstarfsvilja, einnig falleg og vel gerð hryssa.

Þá er rétt að nefna einnig hryssur sem hljóta heiðursverðlaun fyrir afkvæmi utan landssteinanna en það eru þær Garún frá Árbæ og Líf frá Slippen. Garún er stödd í Noregi og Líf í Danmörku og verða heiðraðar í sínum heimalöndum. 

Þetta er afar góður hópur hryssna sem hljóta heiðursverðlaun í ár og taka eigendur þeirra við viðurkenningum fyrir sínar heiðurshryssur á árlegri hrossaræktarráðstefnu fagráðs í hrossarækt sem haldin verður 7. nóvember næstkomandi.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link