Hólabak ræktunarbú ársins í A-Hún.

  • 22. nóvember 2011
  • Fréttir
Hólabak ræktunarbú ársins í A-Hún.

Uppskeruhátíð búgreinasambanda A-Hún og hestamannafélagsins Neista var sl. laugardagskvöld.

Að venju veittu Samtök Hrossabænda í A.-Hún ræktendum í félaginu viðurkenningar fyrir hæst dæmdu kynbótahrossin.  Viðurkenningar voru veittar fyrir eftirfarandi hross:

Hryssur

4 vetra
Eydís frá Hæli
F. Glymur frá Innri Skeljabrekku M. Dáð frá Blönduósi
B: 7,99  H: 7,74  A: 7,84
Ræktandi og eigandi: Jón Kristófer Sigmarsson
Sýnandi: Gísli Gíslason
 
5 vetra 
Heiðdís frá Hólabaki 
F. Rökkvi frá Hárlaugsstöðum M. Dreyra frá Hólabaki
B: 8,24  H: 8,17   A: 8,20
Ræktandi og eigandi:  Björn Magnússon
Sýnandi:  Agnar Þór Magnússon
 
6 vetra
Hildur frá Blönduósi
F. Adam frá Ásmundarstöðum.  M. Hlökk frá Hólum
B:  8,03  H: 7,99  A: 8,01
Ræktendur: Selma Svavarsdóttir og Tryggvi Björnsson
Eigandi: Ingolf Nordal
Sýnandi: Mette Mannseth
   
7 vetra og eldri
Birta frá Flögu 
F. Gustur frá Hóli.  M. Brynja frá Flugumýri II
B: 8,25   H:  8,13   A: 8,18
Ræktandi: Valur K. Valsson
Eigandi: Berit Edvardsson
Sýnandi:  Berit Edvardsson
 
Stóðhestar
 
4 vetra
Guðberg frá Skagaströnd
F. Smári frá Skagaströnd  M. Þyrla frá Skagaströnd
B: 7,93   H: 7,83   A: 7,87
Ræktandi og eigandi:  Sveinn Ingi Grímsson
Sýnandi:  Erlingur Erlingsson
 
5 vetra
Kompás frá Skagaströnd
F.  Hágangur frá Narfastöðum  M. Sunna frá Akranesi
B: 8,64   H: 8,13    A:  8,34
Ræktandi og eigandi:  Sveinn Ingi Grímsson
Sýnandi: Mette Mannseth
 
6 vetra
Dofri frá Steinnesi
F.  Gígjar frá Auðsholtshjáleigu  M. Dáð frá Steinnesi
B:  8,33   H: 8,25  A:  8,29
Ræktandi: Magnús Jósefsson
Eigendur: Gammur ehf
Sýnandi: Jakob Svavar Sigurðsson
 
7 vetra og eldri 
Kiljan frá Steinnesi
F.  Klettur frá Hvammi  M. Kylja frá Steinnesi
B: 8,35  H: 9,07   A: 8,78
Ræktandi: Magnús Jósefsson
Eigendi: Ingolf Nordal og fl.
Sýnandi:  Þorvaldur Árni Þorvaldsson

 

Sölufélagsbikarinn fær  hæst dæmda hryssa á héraðsýningu í Húnaþingi í eigu heimamanns og fór hann til ræktanda og eiganda Heiðdísar frá Hólabaki, Björns Magnússonar. 

Búnaðarbankabikarinn fær hæst dæmdi stóðhestur á héraðssýningu í Húnaþingi í eigu heimamanns og fóru verðlaunin til eiganda Freyðis frá Leysingjastöðum, Hreins Magnússonar.

Fengsbikarinn sem gefinn var til minningar um Guðmund Sigfússon frá Eiríksstöðum og veittur er hæst dæmda kynbótahrossi í eigu heimamanns og hlaut Sveinn Ingi Grímsson eigandi Kompás frá Skagaströnd verðlaunagripinn.

Þá var bikar til minningar um Magnús Blöndal frá Skagaströnd veittur hæst dæmda 4 vetra stóðhesti úr Austur-Húnavatnssýslu og var hann veittur ræktendum og eigendum Vita frá Kagaðarhóli, Víkingi Gunnarssyni og Guðrúnu Stefánsdóttur.

Ræktunarbú  2011 ársins var valið Hólabak í Húnavatnshreppi og veittu ábúendur þar  Björn Magnússon og Aðalheiður Ingvarsdóttir verðlaunum viðtökur.

„Á árinu 2011 voru 2 hross áberandi frá Hólabaki. Það er fyrrnefnd Heiðdís sem er einungis 5 vetra en á héraðssýningu í maí fékk hún fjórar níur, fyrir tölt, stökk, vilja og geðslag og fegurð í reið.

Glæsihesturinn Sigur frá Hólabaki gerði það afar gott á keppnisvellinum í ár og mætti víða. Þeir Hinrik Bragason urðu t.d. Íslandsmeistarar í fjórgangi og á urðu í 4. sæti í tölti og 5. sæti í fjórgangi á Heimsmeistaramótinu í Austurríki sl. sumar. Glæsilegt,“ segir á vefsíðu Neista.

Þá var Ólafur Magnússon, var kjörinn knapi árins 2011 hjá hestamannafélaginu Neista. Hann hefur gert það gott á fjölmörgum mótum sl. ár:

KS-deildin
4. sæti í fjórgangi
2. sæti í tölti
4. sæti í heildarstigum.
 
Húnvetnska liðakeppnin
1. sæti í tölti
 
Ís-landsmót á Svínavatni
4. sæti í tölti
 
Félagsmót Neista og úrtaka
1. sæti í B flokki
2. sæti í A-flokki
 
Gullmótið í Hafnarfirði
5. sæti í tölti
 
Landsmót hestamanna
12. sæti í B-flokki

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link