Flosi fljótastur í fyrri umferð

  • 27. júní 2012
  • Fréttir
Flosi fljótastur í fyrri umferð

Það fylgir ávallt skemmtileg stemning kappreiðunum á landsmóti. Fyrri umferð 250 metra skeiðsins var að ljúka en keppendur fóru tvær bunur hér í hellidembu í Víðidal. Flosi frá Keldudal og Sigurbjörn Bárðarson voru fljótastir. Flosi fór brautina á 22,58 sekúndum.

Næstfljótastir voru Korði frá Kanastöðum og Teitur Árnason á 22,64 sekúndum.
 
Seinni umferð greinarinnar fer fram á morgun kl. 16.
 
  1. Flosi frá Keldudal og Sigurbjörn Bárðason – 22,58
  2. Korði frá Kanastöðum og Teitur Árnason – 22,64
  3. Gjálp frá Ytra-Dalsgerði og Sigurður Vignir Matthíasson – 22,74
  4. Blængur frá Árbæjarhjáleigu og Daníel Ingi Smárason – 22,79
  5. Þúsöld frá Hólum og Mette Mannseth – 22,83
  6. Birta frá Suður-Nýjabæ og Hanna Rún Ingibergsdóttir – 23.50
  7. Hnikar frá Ytra-Dalsgerði og Erling Ó. Sigurðsson – 23,94 
  8. Segull frá Halldórsstöðum og Elvar Einarsson 24,41 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link