Opið fyrir umsóknir í Áhugamannadeild Norðurlands
Undirbúningur fyrir Áhugamannadeild Norðurlands tímabilið 2027 er kominn af stað og eru áætlaðar dagsetningar:
20.febrúar / Fjórgangur Akureyri
13.mars / Fimmgangur Sauðárkróki
3.apríl / Tölt Akureyri
Áhugamannadeild Norðurlands óskar eftir umsóknum frá þeim liðum sem hafa áhuga á að taka þátt í deildinni keppnisárið 2027. Lokafrestur til að skila inn umsókn ásamt liðsmönnum er 31. október 2026.
Þau lið sem tóku þátt á síðasta tímabili hafa þátttökurétt áfram en þurfa þau að staðfesta fyrir sama tíma hvort þau ætli sér að halda áfram ásamt liðsskipan. Umsóknum & staðfestingum skal skila á netfangið [email protected] fyrir 31.október

Screenshot
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Framboð til stjórnar Landssambands hestamannafélaga
Uppskeruhátíð ungra Sleipnisfélaga