Reiðskólar lykill að nýliðun
Myndir: Erla Guðný Gylfadóttir
Á undanförnum árum hefur orðið vart við áhugaverða þróun í íslenskri hestamennsku. Reiðskólar víða um land bjóða nú í auknum mæli upp á námskeið utan hefðbundins sumartíma og skapa þannig tækifæri fyrir börn og unglinga til að stunda hestamennsku allt árið um kring. Þróunin gefur til kynna að sífellt fleiri vilji nálgast hestamennsku á sama hátt og aðrar íþróttagreinar þar sem reglulegar æfingar og samfelld þjálfun eru hluti af starfinu.
Einn þeirra reiðskóla sem hefur markvisst byggt upp slíka starfsemi er Reiðskólinn Hestalíf sem rekinn er af systrunum Erlu Guðnýju og Þórdísi Önnu Gylfadætrum. Þar hafa námskeið fyrir börn og unglinga verið starfrækt frá árinu 2018 og hefur starfsemin þróast úr hefðbundnum sumarnámskeiðum yfir í heilsársstarf með haust-, jóla- og páskanámskeiðum.
Að sögn þeirra hefur eftirspurnin verið mikil frá upphafi og flest námskeið fyllst fljótt. Sérstaklega hafi áhugi aukist hjá þeim sem vilja halda áfram eftir að sumrinu lýkur.
„Það er alltaf hluti af nemendum sumarskólans sem vill halda áfram að koma á bak og við höfum verið að mæta þeirri eftirspurn með útreiðahópum á haustin og stuttum námskeiðum um jól og páska,“ segja þær.
Hestamennska sem heilsársíþrótt
Í flestum íþróttagreinum þykir sjálfsagt að börn sæki æfingar vikulega allt árið um kring. Hestamennska hefur hins vegar oft verið háð aðgengi að hestum og aðstöðu. Nú virðist þó sem sífellt fleiri ungir knapar vilji stunda íþróttina með sambærilegum hætti og jafnaldrar þeirra í öðrum íþróttum.
„Þetta eru nemendur sem vilja æfa hesta rétt eins og að fara á fótboltaæfingu nokkrum sinnum í viku.“
Fyrsta skref margra inn í hestamennsku
Það sem gerir starf reiðskólanna sérstaklega mikilvægt er að stór hluti þátttakenda á ekki eigin hest og hefur oft engin tengsl við hestamennsku í gegnum fjölskyldu eða vini. Um leið sækir nokkuð stór hópur barna og unglinga námskeiðin þótt þau eigi sjálf hest eða hafi bakland í greininni. Oft er ástæðan sú að þau hafa ekki aðgang að hesti við sitt hæfi á hverjum tíma eða að eigin hestar eru í fríi.
„Stærsti hluti nemendanna á ekki hest eða bakland í hestamennsku.“
„Reiðskólarnir eru gríðarlega mikilvægir og jafnvel mikilvægastir hvað varðar nýliðun og aðgengi inn í hestamennskuna.“
Meira en bara reiðkennsla
Þótt megináherslan sé á reiðmennsku ná áhrif námskeiðanna langt út fyrir það að læra að stjórna hesti. Á námskeiðunum læra börn að bera ábyrgð, umgangast dýr af virðingu og sinna verkefnum sem fylgja hestahaldi.
„Þetta er mikil útivera og samvera með hestum og jafnöldrum og það er öllum hollt.“
Frá námskeiði í eigin hest
Að sögn Erlu og Þórdísar eru fjölmörg dæmi um að nemendur haldi áfram þátttöku í hestamennsku eftir að námskeiðum lýkur. Sumir taka þátt í barna- og unglingastarfi hestamannafélaga og eignast síðar eigin hest.
„Nokkrir hafa keypt sér hest með okkar aðstoð og sá þáttur hefur verið að færast í aukana.“
Keppnishestarnir fengu nýtt hlutverk
Upphaf Hestalífs má að hluta rekja til hestanna sjálfra. Erla og Þórdís áttu nokkra reynda og vel tamda hesta sem höfðu staðið sig vel á keppnisbrautinni, í námi með nemendum við Háskólann á Hólum eða öðrum krefjandi verkefnum.
Í stað þess að fara í langt frí fengu þeir nýtt og mikilvægt verkefni, þeir urðu kennarar.
Meðal reiðskólahestanna hafa í gegnum tíðina verið Landsmótssigurvegarar, Íslandsmeistarar, Reykjavíkurmeistarar, hestar sem farið hafa í gegnum reiðkennaranám á Hólum, 1. verðlauna hryssur og fjölmargir aðrir reynslumiklir gæðingar. Hestar sem áður stóðu í fremstu röð á keppnis- og sýningarvellinum sinna nú því hlutverki að leiða nýja kynslóð knapa inn í hestamennskuna.
„Fyrst og fremst af því að það er gaman,“ svara þær þegar þær eru spurðar hvers vegna þær haldi áfram að byggja upp starf fyrir börn og unglinga.
Þær segja það sérstaklega gefandi að fylgjast með börnum koma ár eftir ár, þroskast sem knapar og finna sinn stað í hestamennskunni. Sum þeirra eignast síðar eigin hest, taka þátt í félagsstarfi eða jafnvel starfa sjálf við reiðskólann. Þannig verði þau smám saman hluti af þeirri hestafjölskyldu sem myndast í kringum starfsemina.
Kannski felst einmitt þar mikilvægi reiðskólanna. Reyndir hestar með langa sögu að baki hjálpa nýrri kynslóð að stíga sín fyrstu skref. Fyrir mörg börn er fyrsta ferðin á hesti í reiðskóla upphafið að ævilöngu sambandi við hestinn og hestamennskuna. Þar liggur framtíð greinarinnar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Opið fyrir umsóknir í Áhugamannadeild Norðurlands
Framboð til stjórnar Landssambands hestamannafélaga