„Við horfum til baka með stolti og þakklæti“

  • 7. október 2026
  • Fréttir

Hugsýn og Elin á Landsmóti í sumar. Ljósmynd: KollaGr

Kynbótahross ársins - Hugsýn frá Ketilsstöðum

Alls voru þær 228 talsins, sex vetra gömlu hryssurnar, sem sýndar voru í fullnaðardómi á Íslandi í ár. Meðaltal aðaleinkunnar þeirra í hæsta dómi var 8,13 og hlutu 161 þeirra 8,00 eða hærra í aðaleinkunn og 1.verðlaun.

Hæst dæmda hryssa ársins í þessum aldursflokki er Hugsýn frá Ketilsstöðum, sem hlaut í aðaleinkunn 8,99 á vorsýningu á Sörlastöðum en stóð jafnframt efst í sínum aldurflokki á Landsmóti í sumar með 8,91 í aðaleinkunn. Hún hlaut fyrir sköpulag 8,63 og þar af hæst 9,5 fyrir bak og lend. Fyrir hæfileika hlaut hún 9,18 með 10,0 fyrir samstarfsvilja og 9,5 fyrir tölt og fegurð í reið.

Hún afrekaði það ekki eingöngu að vera hæst dæmda hryssa ársins því hún er jafnframt hæst dæmda 6.vetra hryssa frá upphafi dóma.

Eigandi og sýnandi Hugsýnar er Elín Holst en ræktendur eru Olil Amble og Bergur Jónsson. Eiðfaxi hafði samband við Olil sem veitti lesendum innsýn í söguna að baki þessari einstöku hryssu.

Frá verðlaunaafhendingu á Landsmóti í sumar. Stoltir ræktendur og eigendur á sigurstundu.

Gæðingar í röðum í báða leggi

Faðir Hugsýnar er Sleipnisbikarhafinn Álfaklettur frá Syðri-Gegnishólum og móðir er Hugrökk frá Ketilsstöðum. Aðspurð um tilurð pörunarinnar segir Olil valið hafa legið nokkuð beint við:

„Valið var auðvelt, þar sem Álfaklettur er í miklu uppáhaldi hjá Elínu og hún vill helst halda undir hann þegar því verður við komið. Annað sem studdi vel við valið var sköpulag og stærð Álfakletts, þar sem Hugrökk og Djörfung, móðir Hugrakkrar, voru fremur smáar og sköpulag þeirra síðra, undir 8,00.“

Þá spilaði ætternið einnig lykilrullu. „Gæðingamæðurnar okkar, Álfadís frá Selfossi og Hugmynd frá Ketilsstöðum, koma tvívegis hvor fyrir í ætt Hugsýnar. Elín velti skyldleikanum aðeins fyrir sér, en þessi útfærsla af skyldleikaræktun hefur reynst okkur mjög vel og fékk því fullan stuðning. Fyrir utan það standa alhliðagæðingar og hross með heiðursverðlaun fyrir afkvæmi í röðum að baki Hugsýnar.“

Hugsýn sem folald ásamt móður sinni, Hugrökk frá Ketilsstöðum

Nafngiftin reyndist svo sannarlega við hæfi enda hlaut Hugsýn, eins og áður segir, 10,0 fyrir samstarfsvilja sem lýst er í dómsorðum;  Mikl framhugsun og þjálni, yfirveguð og samstarfsfús. „Okkur fannst nafnið Hugrökk frumlegt og vel við hæfi dóttur Djörfungar. Okkur þótti Hugsýn eiga skilið sterkt nafn í svipuðum anda og móðir sín, enda hlaut hún 9,0 fyrir tölt, vilja og fegurð í reið aðeins fjögurra vetra gömul með aðaleinkunnina 8,18. Hugsýn hljómar auðvitað svipað, til viðbótar við hvað okkur fannst það fallegt nafn.“

Elín og Hugsýn á flugaskeiði á Landsmóti í sumar. Ljósmynd: Freydís Bergsdóttir

Mikið hestefni

Aðspurð hvernig Hugsýn hafi litið út í uppeldinu segir Olil hana ekki endilega hafa hrópað á athygli strax í fyrstu. „Hugsýn var í uppeldinu jafnvaxin og myndarleg, en ekkert sérstaklega áberandi. Hún var bara jákvæð, forvitin og kurteis. Þegar við fórum svo að skoða hana nánar tveggja vetra sáum við að þar væri líklega dálítið mikið hestefni á ferðinni.“

Hugsýn tamdist svo fljótt og vel líkt og gæðinga er siður. „Hugsýn hélt sínu alla tíð, tamdist fljótt og vel eins og bestu tryppin gera. Það var svo sem ekki mikil tamning; það var meira verið að fara yfir málin, leggja línurnar og hjálpa henni að skilja hvað hún ætti að gera. Hún bætti svo bara alltaf í: meiri styrkur, meiri geta.“

Hugsýn kom fram í kynbótadómi fyrir tveimur árum þá fjögurra vetra gömul og vakti þá strax athygli og hlaut þriðja sætið í þeim aldursflokki á Landsmóti 2024 með 8,31 í aðaleinkunn. Olil var viss um að hún gæti gert stóra hluti í ár. „Ég sagði við Elínu í vor að Hugsýn gæti farið yfir 9,0 fyrir hæfileika. Það er svo sem auðvelt að segja, en ótrúlega erfitt að ná. Það var þó nokkuð augljóst að ef allt gengi eftir myndi það takast.“

Krúnan á verkið á Landsmóti

Olil og Bergur eru ekki óvön því að rækta stórgæðingana í fremstu röð, en hvernig var að fylgjast með framgangi Hugsýnar og Elínar á Landsmóti í sumar? „Við horfum auðvitað til baka með stolti og þakklæti. Það var mjög þægilegt að fylgjast með þessu öllu, enda voru Elín og Hugsýn báðar svo yfirvegaðar og öruggar að það þurfti enga heppni – bara venjulegan dag til að allt gengi upp. Maður veit þó aldrei hvernig þetta fer. Það mikilvægasta er auðvitað að vera sáttur við sitt hross. Það var sannarlega gaman og frábært að fá krúnuna á verkið með efsta sæti á Landsmóti.“

Hugsýn lét ekki aðeins að sér kveða á kynbótabrautinni í sumar. Þær Elín mættu til leiks í tölti T1 á Suðurlandsmótinu í ágúst með glæsibrag, þar sem þær leiddu forkeppnina með einkunnina 8,37. „Ákveðið var að halda henni ekki í ár þar sem Elínu langar að njóta þess aðeins lengur að hafa hana undir hnakk. Árangur þeirra á Suðurlandsmótinu í tölti var glæsilegur með svo háa einkunn í forkeppni. Elín hafði þó ákveðið fyrirfram að fara ekki með hana í úrslit vegna aldurs, kæmust þær þangað, en þær stóðu einmitt efstar eftir forkeppni.“

 

10 hæst dæmdu 6.vetra hryssurnar í ár

1. Hugsýn frá Ketilsstöðum – 8,99
2. Brynja frá Nýjabæ – 8,94
3. Alda frá Sumarliðabæ 2 – 8,81
4. Melrós frá Hemlu II – 8,77
5. Ragna frá Sumarliðabæ 2 – 8,64
6. Birta frá Ólafsbergi – 8,64
7. Nótt frá Tjaldhólum – 8,63
8. Sólmyrkva frá Álfhólum – 8,62
9. Lotning frá Dýrfinnustöðum – 8,61
10. Kylja frá Margrétarhofi  – 8,60

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link