Danmörk Stutteri Gerlach til sölu

  • 8. október 2026
  • Fréttir
PA Landbrugt

Ljósmynd: PA Landbrug

Níutíu íslenskir hestar fylgja með í kaupunum

Búgarðurinn Stutteri Gerlach, staðsettur nyrst á Jótlandi í Danmörku, hefur verið settur á sölu.

Búgarðurinn samanstendur af 54 hektara landi, 160 fermetra íbúðarhúsi og rétt tæplega 1000 fermetra útihúsum. Búið er í fullum rekstri og er boðið til sölu ásamt 90 íslenskum hestum og öllum tilheyrandi vélum og búnaði.

Á landinu er fjöldi girtra hólfa, skógrækt, skjólbelti og hesthús sem gera hestahald ákjósanlegt allan ársins hring. Hesthúsin bjóða upp á lausagöngu og stíur ásamt heygeymslu og vélaskemmu. Hestakosturinn er góður og samanstendur af hátt dæmdum eldri hestum, efnilegum hrossum í þjálfun og vel ræktuðu ungviði. Af hestum í eigu búsins ber helst að nefna:

  • Desert frá Litlalandi sem hæst hlaut 8,52 í aðaleinkunn og varð meðal annars heimsmeistari í 5 vetra flokki á Heimsmeistaramótinu í Berlín árið 2013.
  • Kleó frá Hofi, fyrstu verðlauna hest undan þeirri þekktu afkvæmahryssu Kantötu frá Hofi og Spuna frá Vesturkoti.
  • Fyrstu verðlauna hryssurnar Eivöru frá Holtsmúla, Svönu frá Kagaðarhóli og Unun frá Kjartansstöðum (með hvorki meira né minna en 8,68 fyrir hæfileika).

Búgarðurinn er vel í sveit settur, nyrst á tanga Jótlands, aðeins 7 km frá Bindslev, 10 km frá Tversted, 18 km til Hirtshals og 35 km frá Frederikshavn en frá tveimur síðastnefndu bæjum sigla ferjur til Noregs og Svíþjóðar.

Ásett verð er 15.000.000 danskar krónur sem nemur um 275.000.000 íslenskra króna.

Fasteignaauglýsinguna má skoða hér.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link