CocaCola mótaröðin

  • 23. janúar 2012
  • Fréttir
CocaCola mótaröðin

Æskulýðsnefnd Sörla stendur fyrir Coca Cola mótaröðinni í vetur:

Nú er komið að hinni árlegu smalakeppni æskulýðsnefndar Sörla og að þessu sinni höfum við fengið Coke í lið með okkur og þeir ætla að bjóða upp á drykki og verðlaun.

Mótið er opið öllum og kostar ekkert að keppa. Við höfum fengið Kristján Jónsson til að koma og hjálpa okkur við uppsetningu á brautinni.

Í ár verður keppt í eftirfarandi flokkum: pollar, börn, unglingar og ungmenni/fullorðnir.

Laugardaginn  28. Janúar kl. 14.00 í reiðhöllinni á Sörlastöðum. Skráning verður á netfanginu [email protected], taka fram flokk og félag.

Lokaskráning er á föstudaginn 27. janúar.

Skemmtanagildið verður haft í fyrirrúmi.

Dagskrá:

  • Pollar yngri en 10 ára
  • Börn 10 – 13 ára
  • Unglingar 14 – 17 ára
  • Ungmenni / fullorðnir eldri en 18 ára

Tökum öll þátt og skemmtum okkur saman!

Æskulýðsnefnd Sörla

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link