Landsamband hestamanna Rýnihópur um framtíðarsýn Landsmóta

  • 15. október 2026
  • Fréttir

Frá Landsmótinu á Hólum í sumar. Mynd: LM

Meginspurningin er: Hvað er Landsmót og fyrir hverja er það?

Í framhaldi af stefnumótunarvinnu LH fyrir árin 2026–2030, sem unnin var á síðasta ári, hefur stjórn LH ákveðið að hefja rýnivinnu um framtíð Landsmóta en þetta kemur fram á vef LH.

„Landsmót hefur verið haldið frá árinu 1950 og byggir á sterkum hefðum. Landsmót er fjöregg okkra hestamanna og mikilvægt að rýna og þróa viðburðinn. Nokkur ár eru liðin frá því sambærileg vinna fór fram. Hagsmunaaðilar eru margir og skoðanir ólíkar á því hvert skuli stefna.“

Markmið verkefnisins er að móta sameiginlega framtíðarsýn fyrir Landsmót; hvert það eigi að stefna, hvað vel sé gert og hvað megi bæta. Meginspurningin er: Hvað er Landsmót og fyrir hverja er það?

Skipaður verður sjö manna stýrihópur, jafnframt verða kallaðir saman minni rýnihópar hagsmunaaðila, svo sem keppenda, sjálfboðaliða, mótshaldara, áhorfenda og gesta, hestamannafélaga og samstarfsaðila.

Utanaðkomandi verkefnastjóri hefur verið fenginn til að stýra vinnunni, Ragnhildur H. Magnúsdóttir, ráðgjafi.

Fyrsti rýnihópurinn sem skipaður verður fulltrúum hestamannafélaga, kemur saman á Landsþingi. Stefnt er að því að framtíðarsýn Landsmóta liggi fyrir áður en næstu óúthlutuðu Landsmótum verður úthlutað.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link