Opinn landsliðsfundur á morgun

  • 11. júlí 2011
  • Fréttir
Opinn landsliðsfundur á morgun

Þriðjudaginn 12. júlí kl. 17 mun Guðmundur Guðmundsson þjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta flytja fyrirlestur á opnum fundi íslenska landsliðsins í hestaíþróttum.


„Fundurinn verður haldinn í húsakynnum ÍSÍ, 3.hæð, og hefst stundvíslega kl.17:00.
Guðmundur hefur náð gífurlega góðum árangri með landsliðið og því verður fróðlegt að hlusta á fyrirlestur hans þar sem hann mun m.a. fjalla um undirbúning fyrir keppni og kortleggja leiðina til sigurs. 
Allir áhugasamir eru hvattir til þess að mæta meðan húsrúm leyfir, ókeypis aðgangur,“ segir í tilkynningu frá Landsliðsnefnd LH.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link