Marit Jonsson látin – Brautryðjandi í heimi íslenska hestsins
Marit Jonsson. Ljósmynd: Danish Icelandic Horse Association.
Marit Jonsson, heiðursfélagi Alþjóðasamtaka íslenska hestsins (FEIF) og einn helsti brautryðjandi í sögu íslenska hestsins í Danmörku og á alþjóðavettvangi, lést þann 27. október síðastliðinn, 93 ára að aldri.
Marit fæddist í Noregi en fluttist ung til Danmerkur þar sem hún lærði innanhúsarkitektúr. Þar kynntist hún eiginmanni sínum, Gunnari Jonsson, sem var af íslenskum ættum, en þau voru gift í 67 ár, allt þar til Gunnar lést árið 2020.
Kynni þeirra hjóna af íslenska hestinum hófust í brúðkaupsferð til Íslands árið 1955. Í áætlunarbíl á milli Reykjavíkur og Akureyrar hittu þau frænda Gunnars, sjálfan Gunnar Bjarnason hrossaræktarráðunaut. Sú ferð leiddi þau í heimsókn í Skagafjörð þar sem Marit fór í sinn fyrsta reiðtúr á íslenskum hesti. Hún heillaðist samstundis af mýktinni, ganghæfileikunum og sögu kynsins. Skömmu síðar fengu þau aðstoð Gunnars Bjarnasonar við að flytja tvö hross út til Danmerkur, sem urðu fyrstu íslensku reiðhestarnir þar í landi eftir seinna stríð.
Árið 1968 stofnuðu Marit og Gunnar Danska Íslandshestasambandið (Dansk Islandshesteforening, DI) í stofunni heima hjá sér á búgarðinum Stenholt við Hillerød ásamt um 30 öðrum áhugamönnum um íslenska hestinn. Á Stenholt héldu þau m.a. hryssurnar tvær, Perlu og Stjörnu, sem íslenska ríkið gaf dönsku krónprinsessunni Margréti Þórhildi og Hinriki prins í brúðkaupsgjöf árið 1967.
Marit var óþreytandi eldhugi. Hún sá um ættbókarfærslur danska sambandsins um langt árabil og skrifaði fyrstu ættbókarreglugerðina á gamla ritvél tengdamóður sinnar, enda hafði hún íslenska stafi. Hún dæmdi kynbótahross, hélt dómaranámskeið og miðlaði sögu íslenska hestsins til Dana.
Árið 1969 átti Marit og maður hennar Gunnar ríkan þátt í stofnun FEIF, þar sem Marit gengdi síðar embætti forseta á árunum 1988–1994. Þá unnu þau hjónin gríðarlegt ólaunað starf við útgáfu og skrif í tímaritið Tölt í áratugi. Marit var mikilvirkur rithöfundur og liggja eftir hana meðal annars verkin Dreams and Reality (1994), um 25 ára sögu FEIF, og Dansen på Knivsæggen (1998), sem fjallar um íslenska hrossarækt í 30 ár.
Marit var oft kölluð „góða álfkonan“ (den gode fe) í heimi íslenska hestsins, enda einkenndist allt hennar starf af miklum hlýhug, nákvæmni, fróðleiksfýsn og virðingu fyrir hestinum.
Greinin byggir á minningarorðum Jens Iversen sem birtust á vef Danska Íslandshestasambandsins (Dansk Islandshesteforening) og viðtalsgreininni „Den gode fe“ eftir Kristinu Christensen úr tímaritinu TÖLT (2018).
Margareterhof er selt
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Dagur með hestatannlækni