Stórmót Geysis: Högni og Ýmir sigurvegarar í tölti
Högni Sturluson og Ýmir frá Ármúla sigruðu töltkeppni Stórmóts Geysis.
Hlutu þeir í lokaeinkunn 7,89. Í öðru sæti varð Jón Þorberg Steindórsson sem sat Tíbrá frá Minni-Völlum, og Sævar Örn Sigurvinsson á Orku frá Þverárkoti varð í því þriðja.
Úrslit urðu eftirfarandi:
1 Högni Sturluson / Ýmir frá Ármúla 7,89
2 Jón Þorberg Steindórsson / Tíbrá frá Minni-Völlum 7,72
3 Sævar Örn Sigurvinsson / Orka frá Þverárkoti 7,61
4 Artemisia Bertus / Kráka frá Syðra-Langholti 7,28
5 Sigurður Sigurðarson / Huld frá Hæli 7,00
6 Ævar Örn Guðjónsson / Liba frá Vatnsleysu 4,78
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH