Spá hlaut Glettubikarinn
Frá verðlaunaveitingu á Landsmóti árið 2012
Heiðursverðlaunahryssur voru verðlaunaðar á ráðstefnunni Hrossarækt 2026. Sú hryssa sem hæst stendur ár hvert hampar hinum sögufræga Glettubikar sem nefndur er eftir hryssunni Glettu frá Laugarnesi.
Efsta hryssan í ár er Spá frá Eystra-Fróðholti með 129 stig í aðaleinkunn kynbótamatsins og á nú fimm dæmd afkvæmi. Hún er brún að lit undan Sæ og Glettu frá Bakkakoti og er því af þessu stórmerkilega kyni þeirra Ársæls Jónssonar og Önnu Fíu Finnsdóttur sem hefur skilað óvenjulegum gæðingum í gegnum tíðina.
Spá var sjálf gæðingur og afar eftirminnileg á Landsmóti 2011 fyrir mýkt og fjaðurmagn. Hún stóð svo efst í sex vetra flokki hryssna á Landsmóti 2012 með 9,03 fyrir hæfileika og 8,64 í aðaleinkunn. Spá á nú fimm dæmd afkvæmi. Hæst dæmda afkvæmi hennar er Sparta frá Eystra-Fróðholti undan Rauðskegg frá Kjarnholtum I og stóð hún efst á Landsmóti nú í sumar í elsta flokki hryssna; einn mesti gæðingur sögunnar með 9,35 fyrir hæfileika. Þá var sýndur í sumar fjögurra vetra foli undan Spá, Herskár að nafni undan Óskasteini frá Íbishóli. Herskár er náttúrubarn á gangi og hlaut 8,69 fyrir hæfileika sem var hæsta hæfileikaeinkunn sem fjögurra vetra foli hlaut á árinu. Öll afkvæmi Spáar hafa hlotið fyrstu verðlaun.

Ársæll Jónsson og Anna Fía Finnsdóttir taka við verðlaunum fyrir Spá frá Eystra-Fróðholti úr hendi Ólafs Þórissonar formanni Fagráðs í hrossarækt
Alls voru 16 hryssur sem uppfylltu skilyrði til heiðursverðlauna á Íslandi í ár og eru þær hér í þeirri röð sem þeir voru heiðraðar.
Flauta frá Einhamri
Katla frá Feti
Gleði frá Hemlu II
Stefna frá Torfunesi
Dögun frá Hjarðartúni
Sara frá Stóra-Vatnsskarði
Gleði frá Kaldbak
Ömmustelpa frá Ásmundarstöðum 3
Ríma frá Auðsholtshjáleigu
Þruma frá Árdal
Elding frá Oddsstöðum I
Maístjarna frá Lundi
Grund frá Grund II
Gola frá Þjórsárbakka
Planta frá Skrúð
Margareterhof er selt
Fundaferð öryggisnefndar LH