Litrík ævisaga Kóka komin út
Ævisaga hestamannsins Herberts ,,Kóka” Ólasonar er komin út og var útgáfunni fagnað með hófi í Líflandi í gær. Fjölmiðlamaðurinn þekkti Logi Bergmann Eiðsson ritar söguna, en þeir Kóki eru frændur. Saga Kóka er rakin og lítið dregið undan, bæði hvað einkalífið og viðskiptin varðar.
Rætt er við nokkra samferðamenn hans og vitnað í fjölmiðla auk þess sem Kóki segir söguna í eigin orðum. Við sögu koma m.a. skatturinn, mafían, ástkonur og fleira í hressilegri frásögn sem örugglega mun rata í marga jólapakka hestamanna. Titill bókarinnar er Aftur á bak sem er kannski lýsandi fyrir hina mismunandi kafla í lífi Kóka sem alltaf heldur áfram þrátt fyrir ýmsar áskoranir og ævintýri.
Sögur gefa bókina út og er hún fáanleg í bókaverslunum og hestavöruverslunum.
Eiðfaxi hitti á þá Loga og Kóka í útgáfuhófinu og spjallaði við þá um tilurð bókarinnar, vinnslu og innihald.
Sjáðu viðtal við þá hér að neðan.
Margareterhof er selt
Landsliðsteymi Danmerkur fyrir árið 2027 klárt