Meistaradeild ungmenna í beinni á EiðfaxaTV
Magnús Benediktsson og Bryndís Arnarsdóttir handsala samninga EiðfaxaTV og Meistaradeildar ungmenna um beinar útsendingar frá deildinni
Sjöunda keppnistímabilið í Meistaradeild ungmenna og Top Reiter er framundan í vetur. Í deild þessari keppa knapar á aldrinum 18-21.árs í bæði einstaklings- og liðakeppni.
Eiðfaxi getur sagt frá því með stolti að í fyrsta skipti verður þessi deild á meðal þeirra sem sýnt er beint frá á streymisveitunni EiðfaxaTV og bætist því við yfirgripsmikla dagskrá tímabilsins sem framundan er.
“Við erum mjög spennt að hafa skrifað undir samning við EiðfaxaTV um beinar útsendingar frá keppnisgreinunum í deildinni. Það að deildin sé sýnd beint vekur meiri athygli á því sem við erum að gera og gefur okkar ungu og efnilegu knöpum sýnileika.” segir Bryndís Arnarsdóttir sem situr í stjórn deildarinnar.
Keppt er í sex keppnisgreinum í deildinni og eru það: Fjórgangur, fimmgangurm, slaktaumatökt, 100 metra skeið, gæðingaskeið og gæðingalist. Fjórir knapar eru í hverju liði og mega allir knapar taka þátt í hverri og einni keppnisgrein en efstu þrír telja til stiga í liðakeppni.
“Mótin verða haldin á þremur stöðum á höfuðborgarsvæðinu þ.e. Í samskipahöllinni í Spretti í Kópavogi, reiðhöll Sörla í Hafnarfirði og reiðhöll Harðar í Mosfellsbæ. Við erum spennt fyrir komandi vetri og hlökkum til að hefja keppnistímabilið.”
Margareterhof er selt
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Ný staðsetning á Íslandsmóti fullorðinna og ungmenna árið 2027