Hver opnar dyrnar?
Hrossasala, markaðssetning og nýliðun eru oft rædd sem aðskilin mál. Þau tengjast þó náið. Mynd: úr safni Eiðfaxa
Hrossasala, markaðssetning og nýliðun eru oft rædd sem aðskilin mál. Þau tengjast þó náið. Kynning á hestinum hefur áhrif á sölu, á áhuga almennings og á það hverjir koma inn í hestamennskuna. Á þessu ári hafa orðið breytingar á markaðsstarfinu sem vert er að skoða í þessu ljósi.
Markmið þessarar greinar er ekki að beina spjótum að neinum eða að þykjast hafa öll svörin. Markmiðið er að draga saman það sem liggur fyrir og spyrja spurninga sem vert er að ræða. Hver á að kynna íslenska hestinn núna? Og hvernig má gefa fleirum, bæði börnum og fullorðnum, tækifæri til að kynnast hestinum?
Staðan í markaðsmálum
Frá árinu 2015 var Horses of Iceland sameiginleg rödd íslenska hestsins erlendis. Ríkið lagði fram krónu á móti hverri krónu frá greininni, allt að 25 milljónum króna á ári og Íslandsstofa lagði til verkefnastjóra. Verkefnið var sett á laggirnar að ósk Landssambands hestamannafélaga og Félags hrossabænda.
Í byrjun þessa árs var greint frá því að ríkið hefði hætt stuðningi sínum við verkefnið. Í viðtali við Eiðfaxa í mars hafnaði Linda B. Gunnlaugsdóttir, formaður LH því að samstöðuleysi innan greinarinnar væri ástæðan. Að hennar mati liggur rótin í breyttri stefnu stjórnvalda sem vilja fara í heildarstefnumótun undir hatti Íslandsstofu. Hún sagði jafnframt að fyrri stjórn LH hefði ákveðið að verja fjármunum frekar í önnur verkefni, meðal annars markaðssetningu innanlands.
Linda benti á að mesta hættan væri sú að dýrmæt vinna síðustu ára færi forgörðum á meðan beðið væri eftir nýju kerfi. LH hefði skorað á ráðuneytið að brúa bilið þar til ný stefna lægi fyrir en því hefði ekki verið vel tekið. Hún hvatti hagaðila til að láta í sér heyra.
Nú eru liðnir rúmir átta mánuðir frá því viðtali. Það er því eðlilegt að spyrja hvar stefnumótunin standi og hvort tekist hafi að brúa bilið.
Nýverið var greint frá því að LH, Bændasamtökin, Félag hrossabænda, Háskóli Íslands á Hólum og Samtök ferðaþjónustunnar hefðu samið við KPMG um að greina hagspor hestsins. Í framhaldinu á að móta sameiginlega kynningaráætlun. Það er mikilvægt skref en greining og áætlanagerð taka hins vegar tíma. Spurningin er hvernig kynningu hestsins verður háttað á meðan sú vinna stendur yfir.
Hver dregur vagninn?
Þetta er spurningin sem ég kemst ekki frá. Er það ríkið sem á að bera markaðssetninguna? Er það Landssambandið með sína rúmlega 14.000 félaga? Eða eru það ræktendur og seljendur sjálfir sem hafa mestra hagsmuna að gæta?
Mig langar líka að velta upp hlut hrossabænda. Búgreinadeild hrossabænda, sem starfar sem deild innan Bændasamtakanna, stóð að Horses of Iceland frá upphafi. Ræktendur eiga mikið undir því að hesturinn sé vel kynntur. Félagið er aðili að hagsporsverkefninu og það er vel. Spurningin er hvaða hlutverki ræktendur vilja gegna í markaðsstarfinu sem tekur við.
Og hvað með ábyrgð okkar allra? Á skráningarsíðu Horses of Iceland kemur fram að þátttakendur hafi lagt fram rúmar 8,3 milljónir króna og ríkið sömu upphæð á móti. Þar er einnig talað um tæpar 16,7 milljónir í ónýttu mótframlagi frá ríkinu. Ekki er tilgreint við hvaða tímabil er átt. Getur verið að hluti af því sem í boði var hafi aldrei verið nýttur?
Ef greinin nýtti ekki það sem í boði var, hvers vegna? Sjá fyrirtækin ekki ávinninginn? Eða ber enginn einn aðili ábyrgðina þegar allir eiga að bera hana saman?
Hestamennska fyrir öll börn
Markaðssetning snýst ekki bara um sölu til útlanda. Hún snýst líka um það hverjir verða hestamenn framtíðarinnar. Þar finnst mér við standa frammi fyrir öðrum vanda. Hestamennskan er að stórum hluta áhugamál sem gengur í ættir. Börn sem eiga ekki foreldra eða ættingja í hesthúsinu komast sjaldan í kynni við hestinn.
Í gegnum árin hefur víða verið boðið upp á hestaval í grunnskólum. Oft hefur það verið í samstarfi við hestamannafélög, Háskólann á Hólum eða einstaklinga sem lána hesta. Sum hestamannafélög bjóða einnig upp á að Knapamerkin séu metin sem val á efsta stigi grunnskóla.
Þetta eru góð dæmi en þau standa á einstaklingsframtaki. Verklegt val í hestamennsku krefst hesta, búnaðar, aðstöðu, tryggingar og kennara. Skólar og sveitarfélög greiða almennt ekki fyrir það. Kostnaðurinn lendir því á foreldrum og þá sitja börnin ekki lengur við sama borð. Barnið sem á foreldra sem geta borgað kemst á hestbak. Hitt situr eftir.
Er hægt að brjóta þetta upp? Getur hestamennska orðið hluti af valgreinum í fleiri skólum án þess að kostnaðurinn falli á heimilin?
LH er sérsamband innan Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. Árið 2024 voru hestaíþróttir fjórða fjölmennasta íþróttagreinin innan ÍSÍ með 13.944 skráða iðkendur. Gæti ÍSÍ komið að þessu? Innan íþróttahreyfingarinnar hafa verið settar á fót svæðisstöðvar íþróttahéraða um allt land. Væri hægt að nýta það net til að tengja saman skóla, hestamannafélög og reiðskóla?
Nýliðar verða ekki til úr engu. Einhver þarf að opna dyrnar.
Bókin á undan hestinum
Ein leið gæti verið að byrja á bóklega hlutanum. Ef til væri námsefni um hestinn sem allir grunnskólar hefðu aðgang að gæti hvaða kennari sem er kennt það í vali. Saga hestsins, eðli hans, gangtegundir, umhirða og öryggi. Þetta kostar ekki hest í hverja kennslustund en kveikir áhugann. Verklegi hlutinn gæti svo farið fram í samstarfi við reiðskóla eða hestamannafélag.
Við eigum fordæmi. Knapamerkin urðu til í verkefninu Átak í hestamennsku á árunum 2000 til 2004. Að því stóðu Bændasamtökin, LH, Félag tamningamanna og Félag hrossabænda. Nú eru Knapamerkin í umsjá Háskólans á Hólum og eitt viðamesta fræðsluefni sem til er um íslenska hestinn. Þau eru hins vegar ætluð þeim sem þegar eru komnir á hestbak.
Hver á að búa til efni fyrir hina? Er það Háskólinn á Hólum með sína sérþekkingu? Er það LH í gegnum æskulýðsstarfið? Eða eiga menntayfirvöld að koma að því, þar sem hesturinn er hluti af menningararfi þjóðarinnar?
Reiðskólarnir sem bera hitann og þungann
Mín skoðun er sú að það séu reiðskólarnir sem dragi vagninn þegar kemur að nýliðun í dag. Þeir vinna frábært starf en gera það sem sjálfstæð fyrirtæki. Þeir eiga hestana, búnaðinn og þekkinguna sem skólarnir hafa ekki.
Er hægt að auðvelda þeim að koma inn í skólana? Gæti sjóður eða samningur við sveitarfélög gert þeim kleift að bjóða skólahópum aðgang án þess að foreldrar greiði brúsann? Þetta er stórt verkefni og það snýst á endanum um peninga. En það snýst líka um hvort einhver tekur að sér að leiða það.
Sami þráðurinn
Þegar ég horfi á þetta í heild sé ég einn og sama þráðinn. Góð markaðssetning selur hross. Hún dýpkar líka áhuga á hestinum hér heima og dregur fleiri inn í hestamennskuna. Fleiri hestamenn þýða fleiri kaupendur, fleiri ræktendur og sterkari grein. Ef enginn segir sögu hestsins, hvorki erlendis né í skólastofunni, segir hún sig ekki sjálf.
Eftir standa spurningar sem ég held að við þurfum að svara saman:
- Hver ber ábyrgð á markaðssetningu íslenska hestsins í dag?
- Hvar stendur stefnumótunin sem ráðuneytið vísaði til Íslandsstofu?
- Ætti Félag hrossabænda að taka stærra hlutverk í markaðsstarfinu?
- Hver getur búið til námsefni um hestinn fyrir grunnskóla?
- Hvernig má styðja reiðskólana til að ná til barna sem annars komast aldrei á hestbak?
Ég skrifa þetta ekki úr fjarlægð. Ég stend sjálf nærri hestamennskunni og þykir vænt um hana. Sem blaðamaður, hestamaður og velunnari íslenska hestsins langar mig að leita svara við þessum spurningum, til dæmis hjá Landssambandinu, Félagi hrossabænda, reiðskólum og fleirum sem koma að málinu. Þangað til vil ég hvetja hestamenn til að velta þessu fyrir sér. Hesturinn á það skilið að við tölum fyrir honum.
Margareterhof er selt
Átta hlutu gullmerki LH
Suðurlandsdeildin áfram á EiðfaxaTV
Heim í hlað – Ný þáttaröð á EiðfaxaTV