Ástund í hálfa öld
Hjónin Arnar Guðmundsson og Sigríður Guðmundsdóttir hófu verslunarrekstur árið 1976 og í upphafi var Ástund bókaverslun. Málin þróuðust þó þannig að rekstur hestavöruverslunar varð ofan á og Ástund hefur þjónað hestafólki í áratugi. Allt til þessa árs var verslunin til húsa í Austurveri við Háaleitisbraut í Reykjavík, en hefur nú flutt sig um set að Lynghálsi 3 í Reykjavík, í mun stærra húsnæði og nær athafnasvæði hestamanna.
Arnar og Sirrý hafa selt reksturinn til Guðmundar sonar síns og hans fjölskyldu og ný kynslóð er tekin við keflinu.
Fulltrúi Eiðfaxa leit við í afmælisteitinu á Lynghálsi og tók þau Arnar og Sirrý sem nú kveðja reksturinn eftir farsæl 50 ár.
Margareterhof er selt
Framlengdur skráningafrestur í Suðurlandsdeild