Eyrún Ýr skeiðknapi ársins
Eyrún Ýr Pálsdóttir er skeiðknapi ársins 2026
Skeiðknapi ársins 2026 er Eyrún Ýr Pálsdóttir en valið var kunngjört rétt í þessu á Uppskeruhátíð Landsambands hestamannafélaga í Gamla Bíói. Í tilkynningu frá Landssambandinu kemur fram:
„Eyrún vann 100 metra skeið á Landsmóti á hryssunni Friðsemd frá Kópavogi. Eyrún og Friðsemd unnu jafnframt 100 metra skeið á Íslandsmóti auk þess að hafa sigrað sömu grein á Reykjavíkurmeistaramóti. Eyrún og Friðsemd eiga besta tíma ársins í 100 metra skeiði, 7,30 sekúndur og standa efstar á WR lista FEIF í 100 m. skeiði með glæsilegan meðaltíma upp á 7,34 sek.“
Eiðfaxi óskar Eyrúnu innilega til hamingju með árangur ársins!
Aðrir tilnefndir voru:
- Gústaf Ásgeir Hinriksson
- Konráð Valur Sveinsson
- Páll Bragi Hólmarsson
- Teitur Árnason
Margareterhof er selt