Klara Nydahl stóri sigurvegarinn á uppskeruhátíð SIF
Klara Nydahl og Dagur frá Ketilsstöðum á Norðurlandamótinu í sumar. Ljósmynd: Cassandra Laikmets
Sænska íslandshesta sambandið (SIF) hélt sína árlegu uppskeruhátíð (Islandshästgalan) um helgina í tengslum við haustfund sambandsins. Þar voru veitt verðlaun fyrir framúrskarandi árangur á keppnisvellinum og kynbótabrautinni á árinu 2026, auk þess sem eldhugi og reiðkennari ársins fengu sérstaka viðurkenningu. Greint var frá verðlaunahöfum á hestamiðlinum Ridsport.
Óhætt er að segja að stóri sigurvegari kvöldsins sé Klara Nydahl, sem sópaði að sér verðlaunum. Hún hlaut alls þrenn einstaklingsverðlaun – sem knapi ársins, gæðingaknapi ársins í ungmennaflokki og ungi kynbótaknapi ársins – auk þess sem keppnishestur hennar, Dagur frá Ketilsstöðum (undan Aðli frá Nýjabæ og Djörfungu frá Ketilsstöðum), var valinn gæðingur ársins. Þá átti Guðmundur Einarsson einnig frábært kvöld og fór heim með tvenn verðlaun, sem íþróttaknapi ársins og sendiherra ársins.
Íþrótta- og gæðingaknapar ársins
Guðmundur Einarsson var valinn íþróttaknapi ársins í fullorðinsflokki eftir glæsilegt keppnisár, þar á meðal á Norðurlandamótinu. Tekla Petersson var valin íþróttaknapi ársins í ungmennaflokki og Vera Elgholm í unglingaflokki.
Í gæðingakeppni var Nicolina Marklund valin gæðingaknapi ársins í fullorðinsflokki, Klara Nydahl í ungmennaflokki (GDY) og Michelle Edvall Karlsson í unglingaflokki (GDT). Þá var Kjarval från Knutshyttan valinn sænskræktaði íþróttahestur ársins.
Ræktunarverðlaun
Á kynbótavængnum var Máni Hilmarsson útnefndur kynbótaknapi ársins eftir gott ár á sýningarbrautinni og Klara Nydahl hlaut verðlaun sem ungi kynbótaknapi ársins. Ræktunarbúið Agersta var svo valið ræktunarbú ársins 2026.
Sendiherra ársins og félagsstörf
Auk verðlaunanna sem íþróttaknapi ársins hlaut Guðmundur Einarsson sæmdarheitið sendiherra ársins 2026 (Årets ambassadör). Í umsögn dómnefndar segir að sannur sendiherra sé ekki aðeins sá sem keppir á stærstu mótunum, heldur einnig sá sem kemur heim, brettir upp ermarnar og vinnur fyrir sitt félag og framgang hestamennskunnar. Er þar sérstaklega nefnt að gullverðlaunin frá Norðurlandamótinu hafi varla verið kominn upp á hillu áður en hann var mættur á fjórhjólið sem vallarstjóri á félagsmóti Gneista til að tryggja að vellirnir væru í toppstandi fyrir félagsmenn.
Þá hlutu eftirtaldir aðilar viðurkenningu fyrir óeigingjarnt starf í þágu greinarinnar í Svíþjóð:
- Félag ársins: Hestamannafélagið Fálki, fyrir fjölbreytt stört þar sem gleðin er við völd, allt frá prjónaklúbbum og strandmyndatökum til keppna, auk góðs samstarfs við önnur félög á borð við Feng.
- Reiðkennari/þjálfari ársins: Anna Andersson, reiðskólastjóri sem síðan 2022 hefur byggt upp öruggt og opið reiðskólastarf með velferð hestsins og sjálfbæra þjálfun að leiðarljósi.
- Sjálfboðaliði ársins (Årets eldsjäl): Ulla Lönn, fyrir ómetanlegt starf bak við tjöldin hjá félaginu Kulltorp Katla Ryttarförening, sem vaxið hefur í yfir 200 félagsmenn síðan 2022 og leggur mikla áherslu á starf fyrir fatlaða.
Yfirlit yfir verðlaunahafa á uppskeruhátíð SIF:
- Knapi ársins: Klara Nydahl
- Íþróttaknapi ársins: Guðmundur Einarsson
- Íþróttaknapi ársins (ungmenni): Tekla Petersson
- Íþróttaknapi ársins (unglingar): Vera Elgholm
- Gæðingaknapi ársins: Nicolina Marklund
- Gæðingaknapi ársins (GDY): Klara Nydahl
- Gæðingaknapi ársins (GDT): Michelle Edvall Karlsson
- Gæðingur ársins: Dagur frá Ketilsstöðum
- Sænskræktaði íþróttahestur ársins: Kjarval från Knutshyttan
- Kynbótaknapi ársins: Máni Hilmarsson
- Ungi kynbótaknapi ársins: Klara Nydahl
- Ræktunarbú ársins: Agersta
- Reiðkennari ársins: Anna Andersson
- Sendiherra ársins: Guðmundur Einarsson
- Sjálfboðaliði ársins: Ulla Lönn
- Félag ársins: Fálki Islandshästförening
Garðshorn á Þelamörk keppnishestabú ársins