„Það gerist ekki neitt af sjálfu sér“
Bjarni og Birna taka við heiðursviðurkenningu úr hendi Ólafs Þórissonar formanns Búgreinadeildar hrossabænda
Á fagráðsstefnunni Hrossaræktin 2026 hlutu þau Bjarni Marínósson og Birna Hauksdóttir í Skáney heiðursviðurkenningu Búgreinadeildar hrossabænda.
„Við urðum bæði hissa og síðan þakklát fyrir þessa viðurkenningu fyrir störf okkar í félagsmálum hrossabænda, þau hafa verið okkur hugðarefni í yfir fjörutíu ár.“ segja þau hjón aðspurð um hvernig þeim hafi orðið við að hljóta viðurkenninguna.
En líkt og segir í texta sem Þorvaldur Kristjánsson las upp við tilefnið hafa bæði, Bjarni og Birna, verið mjög virk í félagsmálum hestamanna í gegnum tíðina. Bjarni var í stjórn Vesturlandsdeildar Félags hrossabænda í mörg ár og formaður Hrossaræktarsambands Vesturlands í fjölda ára auk ýmissa starfa fyrir hestamannafélagið Faxa meðan það var og hét. Birna hefur einnig verið stórvirk í félagsmálum hestamanna. Hún var í stjórn hestamannafélagsins Harðar í mörg ár, var formaður Vesturlandsdeildar Félags hrossabænda í áraraðir og var gjaldkeri í aðalstjórn Félags hrossabænda um árabil.
„Við fengum tækifæri til að taka þátt í þróun í hrossaræktinni og kynnast þeim mönnum sem mótuðu okkur. Þar er vert að nefna Halldór Gunnarsson í Holti, Einar Gíslason á Skörðugili og fleiri og fleiri. Þvílíkur kraftur og orka sem þessir menn lögðu í félagsmálin. Það var góður félagsmálaskóli að fá að starfa með þeim.“
Á Skáney hefur um rúmlega aldarskeið verið stunduð markviss hrossarækt og eiga margir úrvalsgripir nútímans ættir sínar að rekja til Skáneyjar. Þar ber ekki síst á stóðhestinum Blesa 598 frá Skáney, sem stóð efstur í elsta flokki stóðhesta á Landsmóti á Hólum árið 1966. Hann hlaut svo 1.verðlaun fyrir afkvæmi á Landsmótinu á Skógarhólum árið 1970. Afkomendur hans munu því bera uppi hróður hrossaræktarinnar þar á bæ um ókominn ár.

Blesi frá Skáney
En hvaða skilaboð hafa þau til núverandi og komandi kynslóða hestamanna. „Haldið áfram að þróa og breyta því sem þarf að breyta í framkvæmd ræktunarinnar, því hún skilar árangri. Það sést þegar skoðaðir eru dómar og reiðmennska. Takið þátt í félagsmálum. Komið með hugmyndir ykkar því ef ekkert heyrist frá grasrótinni gerist ekki neitt. Það gerist ekki neitt af sjálfu sér.“
Texti sá er fylgdi heiðursviðurkenningunni og lesin var upp á ráðstefnunni fylgir hér með í heild sinni.
Birna Hauksdóttir og Bjarni Marínósson.
Á Skáney í Reykholtsdal hefur sama ættin búið frá árinu 1909. Skáney er í dag eitt af elstu hrossaræktarbúum landsins en segja má að ræktunarstarfið hafi byrjað fyrir alvöru árið 1944 þegar Marinó Jakobsson og Vilborg Bjarnadóttir taka við búskapnum. Marinó var útsjónarsamur hrossaræktarmaður og stofninn á Skáney því orðinn langræktaður.
Árið 1958 fæðist rauðblesótt hestfolald á Skáney sem fær nafnið Blesi frá Skáney og síðar ættbókarnúmerið 598. Blesi stóð efstur stóðhesta 6v. og eldri á Landsmótinu á Hólum í Hjaltadal árið 1966 og hlaut svo 1.verðlaun fyrir afkvæmi á Landsmóti á Skógarhólum árið 1970. Enn í dag eiga flest hrossin í Skáney ættir að rekja til Blesa. Sennilega má segja að frægasti afkomandi Blesa í dag sé Skýr frá Skálakoti en Blesi kemur fjórum sinnum fyrir í ættartöflu Skýs í gegnum föður sinn Sólon frá Skáney.
Frá Skáney hefur í gegnum tíðina komið fjöldi kynbóta- og keppnishrossa auk úrvals reiðhrossa. Hrossin í Skáney hafa verið þekkt til margra ára fyrir myndarskap, prúðleika og úrvals reiðhestskosti.
Bjarni Marinósson er fæddur og uppalinn í Skáney. Árið 1976 tók Bjarni við hálfu búinu á móti foreldrum sínum og frá 1980 þegar Margrét Birna Hauksdóttir flytur að Skáney tóku þau Bjarni og Birna að fullu við búinu á Skáney.
Birna er fædd og uppalin í Reykjavík en var í sveit á æskuárum í Kjósinni og kynntist þá hestum og hestamennsku og síðar m.a. á stórbýlinu Grímstungu í Vatnsdal hjá þeim Lárusi og Petrínu. Síðar fór Birna að halda hesta í Reykjavík yfir veturinn og í Kjósinni á sumrin. Birna kom með nokkur hross með sér að Skáney og fór í framhaldinu að taka virkan þátt í ræktun og þjálfun hrossanna.
Bjarni byrjaði snemma að fást við tamningar heima á Skáney en starfaði einnig við tamningar annarsstaðar s.s. á tamningastöðinni á Hvítárbakka í Borgarfirði og einnig norður í Aðaldal.
Lengi vel var stórt blandað bú í Skáney með kýr, sauðfé og hross. Lausar stundir frá hefðbundnum bússtörfum hafa í gegnum tíðina verið notaðar til tamninga og þjálfunar og klukkan ekki látin setja þar mörk, vinnudagurinn oft langur, enda Bjarni og Birna annálað dugnaðarfólk.
Bjarni gerði mikið af því að sýna sjálfur kynbótahross frá Skáney og var með hross á flestum Lands- og Fjórðungsmótum um árabil, var t.d. til þess tekið að á Fjórðungsmóti á Kaldármelum 1988 var um 1/3 allra kynbótahrossa mótsins frá Skáney.
Í dag er í Skáney rekið alhliða hrossaræktarbú með öllu því sem tilheyrir, ræktun, þjálfun, sölu, stóðhestahaldi og reiðkennslu en yngra sambýlisfólkið á Skáney Haukur Bjarnason og Randi Holaker eru lærðir tamningamenn og reiðkennarar frá Hólaskóla.
Bæði hafa þau Bjarni og Birna verið mjög virk í félagsmálum hestamanna í gegnum tíðina. Bjarni var í stjórn Vesturlandsdeildar Félags hrossabænda í mörg ár og formaður Hrossaræktarsambands Vesturlands í fjölda ára auk ýmissa starfa fyrir hestamannafélagið Faxa meðan það var og hét.
Birna hefur einnig verið stórvirk í félagsmálum hestamanna. Hún var í stjórn hestamannafélagsins Harðar í mörg ár, var formaður Vesturlandsdeildar Félags hrossabænda í áraraðir og var gjaldkeri í aðalstjórn Félags hrossabænda um árabil.
Árangur Skáneyjarhrossanna í hrossaræktinni hefur verið afar eftirtektarverður til margra ára og áhrifa þeirra mun gæta í íslenska hrossastofninum til framtíðar. Félag hrossabænda vill þakka Birnu og Bjarna innilega fyrir margháttuð störf í þágu íslenskra hrossaræktar – til hamingju.
Margareterhof er selt
Átta hlutu gullmerki LH
Samstarf Hestamannafélagsins Sörla og Eiðfaxa