Hestamannafélagið Sörli Samstarf Hestamannafélagsins Sörla og Eiðfaxa

  • 26. nóvember 2026
  • Fréttir

Magnús Benediktsson fyrir hönd Eiðfaxa og Kristín Þorgeirsdóttir formaður Sörla handsala samninga

EiðfaxiTV sýnir frá viðburðum Sörla

Hestamannafélagið Sörli og Eiðfaxi hafa ritað undir nýjan samning um að EiðfaxiTV sýni beint frá mótum á vegum félagsins á komandi keppnistímabili. Kristín Þorgeirsdóttir, nýkjörinn formaður Sörla, fagnar samningnum og segir hann mikilvægan lið í að þjónusta keppendur enn betur í glæsilegri nýrri aðstöðu félagsins.

Aðspurð um þýðingu samningsins fyrir félagið segir Kristín að útsendingarnar komi til móts við óskir keppenda í mótahaldinu öllu saman. „Myndefnið er gríðarlega vinsælt og Eiðfaxi gegnir þarna lykilstöðu. Mér er sérlega umhugað um yngri flokka og það að fjölskyldur geti horft á knapa í yngri flokkum Sörla stíga mikilvæg skref eins og að fara á völlinn skiptir mig miklu. Knöpum þyki efnið skemmtilegt og þá sérstaklega að sjá hvernig keppnin leit út frá áhorfandanum séð. Það má svo ekki gleyma því að það er gríðarlegur lærdómur falinn í því að horfa á sjálfan sig og aðra keppa. Síðan nýtist efnið öðrum t.d. við sölu eða kaup á hrossum og fl.“ segir Kristín

Kristín er nýtekin við formennsku í Sörla og segir starfið leggjast afar vel í sig, enda sé félagið á fullri ferð. Framundan sé mikil veisla í vetur og langt fram á sumar, bæði í mótahaldi, kennslu, námskeiðahaldi, skemmtunum og öðrum viðburðum. Stærsti þátturinn í þeirri uppsveiflu er nýja reiðhöllin sem tekin hefur verið í notkun í hjarta félagssvæðisins á Sörlastöðum í Hafnarfirði.

„Höllin leggst mjög vel í hinn almenna félagsmann og það er brjálað að gera þarna. Hún er algjör leikbreytir í öllu okkar starfi,“ segir Kristín og bætir við að mannvirkið aðlagist svæðinu einstaklega vel. „Þetta byrjaði sem hugmyndavinna en stækkaði alltaf í hugum okkar eftir því sem á leið og á endanum varð þetta bara óskastaðan. Ég ætla hreinlega að fullyrða að við séum með flottustu aðstöðuna á landinu.“

Ráðinn nýr móta- og viðburðastjóri

Nóg verður um að vera í vetrarstarfi Sörla, þar sem boðið verður upp á fjölda nýrra námskeiða, reiðkennslu og öflugt félagslíf fyrir allan aldur. Þá hefur félagið nýlega ráðið Önnu Björk Ólafsdóttur í starf móta- og viðburðafulltrúa. Kristín segir að í vetur verði lögð aukin áhersla á keppnisknapa félagsins, en á sama tíma sé haldið áfram á fullri ferð með hinn almenna reiðmann, nýliða og æskulýðsstarfið sem henni er sérstaklega hugleikið. Einn af hápunktum vetrarins er Liðakeppni Sörla, innanhússmótaröð þar sem félagsmenn taka sig saman og keppa í liðum í fjórgangi, tölti, slaktaumatölti og smala, sem hefur notið gríðarlegra vinsælda. „Fólk er þegar farið að tilkynna inn liðin sín og ég heyrði á sigurvegurum síðasta árs að þau ætla að verja titilinn. Þetta var svo vinsælt hjá okkur í fyrra að við ákváðum að bæta enn frekar í núna – þetta er auðvitað bara meistaradeild Sörla,“ segir Kristín létt í bragði.

Að lokum hvetur formaðurinn allt hestafólk til að fylgjast vel með starfinu og líta við í Hafnarfirðinum á nýju ári: „Bara komið og fylgist með. Það eru allir velkomnir í Sörla og það verður gríðarleg veisla hjá okkur í vetur.“

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link