Suðurlandsdeildin Suðurlandsdeildin áfram á EiðfaxaTV

  • 23. nóvember 2026
  • Fréttir

Magnús Benediktsson fyrir hönd Eiðfaxa og Viktor Sigurbjörnsson fyrir hönd Suðurlandsdeildar handsala samninga

Spennandi tímabil framundan í Suðurlandsdeildinni

Skrifað hefur verið undir nýjan tveggja ára samning þess efnis að EiðfaxiTV muni áfram sýna beint frá öllum mótum í Suðurlandsdeildinni í hestaíþróttum á komandi keppnistímabili. Magnús Benediktsson, hjá Eiðfaxa, tók Viktor Sigurbjörnsson, stjórnarmann í Suðurlandsdeildinni, tali af þessu tilefni.

Að sögn Viktors er undirbúningur fyrir veturinn á fullu og nú þegar hafa 11 lið skráð sig til leiks og búið er að auglýsa eftir fleirum. „Fólk fer bara stolt og með kassann fram inn í næsta tímabil,“ segir Viktor og bætir við að mikill áhugi sé meðal bæði liðseigenda og keppenda fyrir komandi tímabili..

Ómetanlegt fyrir keppendur og áhorfendur

Viktor telur beinar útsendingar EiðfaxaTV gífurlega verðmætar fyrir deildina. „Þetta er bæði mikilvægt fyrir þá sem hafa áhuga á deildinni en komast ekki á staðinn, og ekki má gleyma framtíðinni, að eiga allt þetta myndefni aðgengilegt á einum stað. Þá nýta keppendur sér upptökurnar líka heilmikið til að rýna í eigin frammistöðu.“

Parafimin í sérflokki

Keppt verður áfram í Rangárhöllinni í hefðbundnum greinum, en Suðurlandsdeildin sker sig úr að því leyti að hún er eina deildin á landinu sem býður upp á parafimi. Viktor segir að breytingar sem gerðar voru á greininni fyrir um þremur árum hafi heppnast afar vel; þá var keppendum í hverju liði fækkað úr þremur í tvo og slaktaumatölti bætt inn á móti. „Við það varð greinin styttri, skarpari og mun meiri skemmtun fyrir bæði áhorfendur og keppendur,“ segir Viktor að lokum.

Þeir einstaklingar sem hafa áhuga á að vera með í deildinni í vetur en eru ekki þegar komnir í lið eru hvattir til að senda tölvupóst á netfangið [email protected], þar sem möguleiki er á að komast að í deildinni þótt menn séu ekki komnir í lið.

Mótadagskrá Suðurlandsdeildarinnar á komandi tímabili:

23. febrúar Parafimi og slaktaumatölt (T4)
9. mars Fjórgangur (V2)
23. mars Fimmgangur (F2)
6. apríl Tölt (T3) og skeið í gegnum höllina

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link