Bjarkar á Tóftum látinn
Bjarkar Snorrason á Tóftum
Bjarkar Snorrason fyrrum bóndi á Tóftum í Stokkseyrarhreppi lést miðvikudaginn 25. nóvember, 81 árs að aldri.
Bjarkar var þekktur í heimi íslenska hestsins sem hrossaræktandi og félagsmálamaður en hann var m.a. formaður Hrossaræktarsamtaka Suðurlands um skeið.
Hann var góður ræktunarmaður á búfé og ræktaði fjölda góðra hrossa þá helst út af Hríslu frá Laugarvatni. Þeirra frægastur er stóðhesturinn Illingur frá Tóftum sem stóð efstur í flokki fjögurra vetra stóðhesta á Landsmóti 2002 og varð svo í 2.sæti í A-flokki á Landsmóti árið 2008.
Þá var Bjarkar einn af frumkvöðlum við upptöku kynbótasýninga hrossa og eyddi mörgum stundum við kynbótabrautina með upptökuvél á árum áður. Þá var hann einnig þekktur sem húmoristi og gleðigjafi á góðri stund og geta um það vottað allir þeir sem hann þekktu.
Eiðfaxi vottar aðstandendum hans og vinum samúðar.
Margareterhof er selt