Dómarar klárir fyrir heimsmeistaramótið
FEIF hefur gefið út hvaða tólf dómarar munu dæma á Heimsmeistaramótinu í Rieden í Þýskalandi næsta sumar. 36 sóttu um og voru eftirfarandi tólf valdir.
- Andreas Windsio
- Anne Fornstedt
- Åsa William
- Bram van Steen
- Friðfinnur Hilmarsson
- Inga Trottenberg
- Katharina Konter
- Lise Galskov
- Nicolai Thye
- Pjetur N. Pjetursson
- Roger Scherrer
- Valdimar Auðunsson
Þorgeir Guðlaugsson er yfirdómari og Susanne Braun er eftirlitsdómari.
„FEIF vill koma á framfæri innilegu þakklæti til allra umsækjenda fyrir áhugann og viljann til að leggja sitt af mörkum. Metfjöldi umsókna endurspeglar þá miklu skuldbindingu, elju og áhuga sem ríkir í hópi alþjóðlegra íþróttadómara FEIF.“
Margareterhof er selt
Samstarf Hestamannafélagsins Sörla og Eiðfaxa