„Gaman að geta tekið þátt í þessu frábæra starfi“
Það var gaman að koma í reiðhöll Sleipnis í gær þegar námskeiðið Allir á bak fór fram. Allir á bak er sérstakt reiðnámskeið fyrir börn með sérþarfir og fjölbreyttar stuðningsþarfir hjá hestamannafélaginu Sleipni á Selfossi. Þær Elísabet Sveinsdóttir og Birna Káradóttur hafa umsjón með námskeiðinu en fengu að þessu sinni liðsstyrk frá knöpum úr landsliðshópi Íslands.
A Landsliðsknaparnir Haukur Baldvinsson, Helga Una Björnsdóttir og Sigursteinn Sumarliðason voru mætt til að aðstoða en hvert barn þarf amk tvo aðstoðarmenn með sér. Einnig mætu U21 landsliðsknaparnir Elsa Kristín Grétarsdóttir, Elísabet Líf Sigvaldadóttir, Elva Rún Jónsdóttir, Loftur Breki Hauksson, Lilja Rún Sigurjónsdóttir og Sara Dís Snorradóttir ásamt landsliðsþjálfara sínum Sigvalda Lárusi Guðmundssyni.
Viðtal við þau Hauk Baldvinsson, Elsu Kristínu Grétarsdóttur landsliðsknapa og Sigvalda Lárus er í spilaranum hér fyrir neðan.
Margareterhof er selt
Dómarar klárir fyrir heimsmeistaramótið
Breytingar á fimmgangi, gæðingaskeiði og slaktaumatölti!?