Breytingar á fimmgangi, gæðingaskeiði og slaktaumatölti!?
Ef tillögurnar sem liggja fyrir ná fram að ganga gætu þær haft umtalsverð áhrif á niðurstöðu umræddra keppnisgreina í framtíðinni. Ljósmynd: Úr safni Eiðfaxa
Fulltrúaþing FEIF verður haldið þann 26. janúar næstkomandi og liggja nokkrar tillögur frá íþróttanefnd FEIF (e. Sport Committee) um breytingar á keppnisreglum fyrir þinginu. Þar má finna breytingar sem munu hafa umtalsverð áhrif á þrjár keppnisgreinar. Þær miða að því að breyta vægi á tölti í fimmgangi, minnka vægi tímans í gæðingaskeiði og herða á kröfum um hægt tölt í slaktaumatölti.
Tölt vegi ekki lengur tvöfalt í fimmgangi
Íþróttanefndin leggur til að einkunn fyrir tölt vegi ekki lengur tvöfalt í fimmgangi, heldur verði aðeins einkunn fyrir skeið tvöföld. Í rökstuðningi með tillögunni kemur fram að framfarir í töltgæðum hafi gert það að verkum að ekki sé lengur þörf á að veita töltinu sérstakt vægi í fimmgangi. Bent er á að eins og reglurnar eru í dag geti hestar með framúrskarandi tölt, en slakt eða miðlungsgott skeið, of auðveldlega tryggt sér sæti í úrslitum.
Minna vægi tímans í gæðingaskeiði
Í gæðingaskeiði (PP1) leggur nefndin til að vægi tímans í lokaeinkunn verði minnkað úr einum þriðja niður í einn fimmta. Í stað þess að tíminn vegi tvöfalt mun hann samkvæmt tillögunni vega einfalt. Rökstuðningurinn er sá að núverandi kerfi hyggli um of mjög fljótum hestum á kostnað einkunna dómara fyrir skeiðkafla, niðurtöku og niðurhægingu.
Sömu kröfur um hægt tölt í slaktaumatölti (T2, T4) og Tölti (T1, T3)
Þá leggur íþróttanefnd FEIF til að kröfunni um „jafn og rólegur hraði“ (slow, calm and steady) í slaktaumatölti (T2 og T4) verði breytt í einfaldlega „hægt tölt“, rétt eins og í T1 og T3. Gamla orðalagið var tekið upp fyrir um 35 árum þegar T2 var þróað með fimmgangshesta í huga, en þeir áttu þá gjarnan erfiðara með hægt tölt. Nefndin telur nú tímabært að gera sömu kröfur um hraða, söfnun og flæði í takti í öllum töltgreinum.
Nái þessar tillögur fram að ganga munu þær hafa í för með sér töluverðar breytingar á þessum keppnisgreinum. Allar þessar tillögur hafa verið til umræðu meðal áhugamanna um keppnishluta hestamennskunnar um styttri eða lengri tíma en eins og alltaf þegar breytingar sem þessar eru lagðar fram verða uppi skiptar skoðanir um málin og sitt sýnist hverjum.
Margareterhof er selt
Dómarar klárir fyrir heimsmeistaramótið
Samstarf Hestamannafélagsins Sörla og Eiðfaxa