Vænting í Hestum og hestamönnum

  • 6. desember 2010
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Næst mesta hæfileikahryssa ársins

Vænting frá Brúnastöðum vakti athygli á kynbótasýningu á Vindheimamelum í lok júlí. Þar stóð hún efst í elsta flokki hryssna með 8,44 í aðaleinkunn.

Hún hlaut 7,83 fyrir byggingu og 8,85 fyrir hæfileika, sem er næst hæsti hæfileikadómur á hryssu á árinu.

Eigandi þessarar kostamiklu hryssu er Gunnlaugur Atli Sigfússon, hestamaður og tamningamaður á Akureyri. Spjallað er við Atla um Væntingu og fleiri hross í Hestum og hestamönnum, sem koma út á morgun. Hægt er að panta áskrif í síma 511-6622 eða með því að smella HÉR.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link