Þilja frá Hólum efst heiðursverðlaunahryssna
Þrjár hryssur sem ekki hafa verið verðlaunaðar fyrir heiðursverðlaun fyrir afkvæmi áður náðu þeim árangri í kynbótamati í ár. Efst þeirra er Þilja frá Hólum í Hjaltadal með 125 stig og 5 dæmd afkvæmi, önnur Askja frá Miðsitju með 118 stig og 7 dæmd afkvæmi, og þriðja Raun frá Húsatóftum með 117 stig og 5 dæmd afkvæmi. Hryssurnar voru verðlaunaðar á ráðstefnunni Hrossarækt 2010 sem var haldin í Bændahöllinni um helgina. Eysteinn Steingrímsson, bústjóri á Hólum, tók við verðlaunum fyrir Þilju og Magnús Svavarsson tók við verðlaunum fyrir Raun, en hann á hryssuna ásamt Þorsteini Vigfússyni á Húsatóftum. Snorri Kristjánsson, eigandi Öskju, tók ekki við verðlaunum fyrir Öskju, en hann hefur lengi verið ósáttur við stöðu hennar í kynbótamatinu og telur hana þar hlunnfarna.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson