Ræktunarmaður Hrossaræktarfélags Andvara 2011

  • 2. desember 2010
  • Fréttir
Ræktunarmaður Hrossaræktarfélags Andvara 2011

Kristinn Hugason var einróma valinn ræktunarmaður ársins á aðalfundi Hrossaræktarfélags Andvara sem haldinn var 28.nóv…

Kristinn náði frábærum árangri á árinu. Frá búi hans Ytra-Dalsgerði voru sýnd 5 hross sem öll fóru í 1.verðlaun. Meðalaldur þeirra var 6,6 ár og meðaleinkunn 8.15. Hæst dæmdur var Lektor frá Ytra-Dalsgerði IS2004165791 með í aðaleinkunn 8.41. Hann var í 6. sæti yfir landið í flokki 6 vetra stóðhesta.Auk þess náðu hross úr ræktun Kristins góðum árangri í gæðingakeppnum, íþróttakeppnum og að sjálfsögðu í skeiðkappreiðum.
Þess má geta að bú Kristins var tilnefnt af F.H.sem eitt af ræktunarbúum ársins 2010.
Kristinn er vel að þessum titli kominn, en þetta er í annað sinn sem hann hlýtur hann.
Stjórnin
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link