Agnes Hekla valin “Bjartasta vonin”

  • 8. desember 2010
  • Fréttir
Agnes Hekla valin “Bjartasta vonin”

Að venju er valinn efnilegasti knapi Fáks úr ungmennaflokki. Þann titil í ár hlýtur Agnes Hekla Árnadóttir en hún náði frábærum árangri á árinu…

og er vel að þeim titli komin að vera “Bjartasta von” Fáks 2010. Agnes Hekla varð fjórfaldur Reykjavíkurmeistari ásamt því að vera í toppbaráttunni á Íslandsmótinu. Það er ljóst að framtíðin er björt hjá Agnesi Heklu því ástundun og prúðmennska ásamt góðum keppnisárangri er til fyrirmyndar hjá henni.
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link