Brugðið á leik í Hrímnishöllinni
Smá hlé er tekið á tamningum á meðan undirbúinn er stórhátíð í Hrímnishöllinni á Varmalæk…
Næstkomandi laugardag verður haldinn jólamarkaður frá kl: 13-18. Þar mun koma saman hópur af handverksfólki til að selja varning sinn og verður mikið og fjölbreytt úrval af handverki á boðstólnum. Hestavörur og hákarl, nokkur skemmtileg dýr verða í hesthúsinu auk hesta svo sem hvolpar, grís og kálfur. Folaldið hún Björg, jólahestur í fullum skrúða og jafnvel einhver fleiri. Söngelskir jólasveinar hafa lofað komu sinni og verður brugðið á leik og dansað í kringum jólatré sem Skógræktarfélag skagfirðinga gaf á markaðinn,einnig rjúkandi vöfflur og súkkulaði að hætti kvennfélagskvenna.Víst er að það verður kátt í höllinni og er fólk hvatt til að taka daginn frá og njóta stundarinnar í sveitinni.
Fyrir síðustu jól var fyrst haldinn jólamarkaður í Hrímnishöllinni með svipuðu sniði og tókst frábærlega. Talið er að um 500 manns hafi sótt markaðin og var þessi dagur hin mesta skemmtun svo að fólk vildi endurtaka leikinn.
Kveðja Magnea
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Fjórðungsmót Austurlands á næsta ári