Ekki Meistaradeild VÍS

  • 6. desember 2010
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Leita að nýjum styrktaraðila

VÍS hefur hætt stuðningi við Meistaradeild í hestaíþróttum í Ölfushöll. VÍS hefur verið aðal styrktaraðali deildarinnar síðan 2005.

Kristinn Skúlason, nýkjörinn formaður Meistaradeildarinnar, segir að það sé mikil eftirsjá að VÍS og það verði ekki auðvelt að fylla skarðið. Hann segir að nú sé unnið hratt í því að finna nýjan styrktaraðila. Hugsanlega verði þeir tveir eða þrír í stað eins áður. „Við eigum okkur óska styrktaraðila en ég vil ekki nefna nein nöfn að svo stöddu. Við erum að þreifa fyrir okkur og það er ljóst að það verður erfiðara í því árferði sem nú er að finna fyrirtæki sem eru tilbúinn í svona verkefni. Ný stjórn mun funda í næstu viku og þá verða hugsanlega komnar skýrari línur í þetta,“ segir Kristinn. Meistaradeildin verður með hefðbundnu sniði í vetur. Hugsanlegt er þó að gerðar verði breytingar á keppni í Smala og jafnvel að greinin verði felld út. „Það komu fram óskir frá knöpum fyrir síðasta keppnistímabil um að breytingar yrðu gerðar á Smalanum og sumir vilja fella hann út. Það mál verður tekið fyrir á fundinum eftir helgi.  Aðrar breytingar verða ekki gerðar á keppnisfyrirkomulagi fyrir þetta keppnistímabil,“ segir Kristinn Skúlason, formaður Meistaradeildar í hestaíþróttum.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link