Vilja afnema sóttkví á HM
@font-face {font-display: swap;
font-family: „Times New Roman“;
}p.MsoNormal, li.MsoNormal, div.MsoNormal { margin: 0cm 0cm 0.0001pt; font-size: 12pt; font-family: „Times New Roman“; }table.MsoNormalTable { font-size: 10pt; font-family: „Times New Roman“; }div.Section1 { page: Section1; }
FEIF þjóðir vilja að sóttkví sem íslensku hrossin njóta á heimsmeistaramótum verði afnumin. Mikill kostnaður er sögð megin ástæðan. Þjóðverjar eru að sögn fremstir í flokki þeirra sem vilja afnema sóttkvína. Lengst af hafa hross íslensku keppnissveitarinnar verið höfð sér í hesthúsi og verið haldið frá öðrum hrossum á mótunum eins og hægt er. Aðstaða íslensku hrossana er oftast rýmri og betri en annarra þjóða. Hefur það vakið öfund.
Útlendingar vilja líka að íslensk hross séu bólusett á Íslandi með nokkuð löngum fyrirvara áður en þau fara út. Er þá verið að tala um mánuði eða jafnvel ár. Íslenskir veirufræðingar segja að ef það verði gert verði þau hross að vera í einangrun. Ef þau komist ekki í liðið verði samt sem áður að flytja þau úr land — eða lóga þeim ella. Vegna hættu á smiti sem hlýst af bólusetningunni. Málið verður tekið fyrir í Sportnefnd FEIF á fundi sem haldinn er í Amsterdam um næstu helgi.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Fjórðungsmót Austurlands á næsta ári