Gullmótið 2010
Gullmótið í hestaíþróttum verður haldið helgina 3. – 4. júlí á félagssvæði
Fáks, Víðidal. Ölgerðin er stærsti styrktaraðili mótsins og mun Barki gefa
keppendum í fyrsta sæti í öllum greinum Marstall fóðurpoka.
Mikill áhugi er fyrir mótinu og heyrst hefur að hópur af erlendum gestum
líti í dalinn á meðan á móti stendur.
Bjössi veitingasali í Reiðhöllinni verður með kveikt á grillinu báða
dagana. Stefnt er að því að sýna leikinn Argentína-Þýskaland á breiðtjaldi
í veitingasölu Reiðhallarinnar klukkan 14:00 á laugardag og verða ýmis
tilboð í gangi á meðan á leik stendur.
Ráslistar verða birtir seint í kvöld eða strax í fyrramálið. Sameina
þurfti barna og unglingaflokk bæði í tölti og fjórgangi. Eins verður bara
einn fullorðinsflokkur í öllum greinum.
Meðfylgjandi er dagskrá* mótsins:
Laugardagur 3. júlí 2010
10:00 T2 opinn flokkur
10:15 Fjórgangur unglingar
11:10 Fjórgangur ungmenni
11:45 Fjórgangur opinn flokkur
MATARHLÉ
13:30 Fimmgangur ungmenni
14:00 Fimmgangur opinn flokkur
14:50 tölt ungmenni
15:10 tölt opinn flokkur
16:10 tölt unglingar
16:45 gæðingaskeið opinn flokkur
Sunnudagur 4. júlí 2010
12:00 Sölusýning
13:00 Fimmgangur Ungmenni
13:30 Fimmgangur Opinn flokkur
14:00 Fjórgangur Ungmenni
14:30 Fjórgangur Opinn flokkur
15:00 Fjórgangur Unglingar
15:30 T2 Opinn flokkur
15:45 Tölt Unglingar
16:10 Tölt Ungmenni
16:35 Tölt Opinn flokkur
* Dagskráin er birt með fyrirvara um breytingar
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH