Námskeið vegna Kappa
Þann 13. apríl síðastliðinn kom út ný útgáfa af Kappa og GagnaKappa, sem hægt er að nálgast á heimasíðu LH, www.lhhestar.is. Frá þeim degi var eldri útgáfa Kappa ónothæf og því er mikilvægt að allir notendur uppfæri hugbúnaðinn.
Á næstu dögum og vikum verður Tölvunefnd LH með námskeið um notkun á Kappa. Mælt er eindregið með því að hvert félag sendi sinn fulltrúa á námskeiðið.
Námskeiðin verða haldin sem hér segir:
- Selfoss 27.apríl kl.20:00 Félagsheimili Sleipnis
- Reykjavík 30.apríl kl.20:00 Íþróttamiðstöðinni í Laugardal
- Borgarnes 4.maí kl.20:00 Félagsheimili Skugga
- Sauðárkrókur 6.maí kl.20:00 Reiðhöll Sauðárkróks
- Akureyri 12.maí kl.20:00 Hafnarstræti 93-95
Vonumst til þess að sjá sem flesta,
Tölvunefnd LH.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH