Þytur 60 ára
Mynd: http://thytur.123.is
Hestamannafélagið Þytur í Vestur-Húnavatnssýslu fagnar 60 ára afmæli um þessar mundir. Af því tilefni verður blásið til mikillar afmælissýningar í Hvammstangahöllinni, sem jafnframt verður vígð formlega við þetta tilefni, laugardaginn 27.febrúar n.k.
Fram koma:
- Fjölmörg ræktunarbú úr héraðinu.
- Sýningar barna- og unglinga.
- Munsturreið karla og kvenna.
- Fimleikar á hestum og margt margt fleira.
Sýningin hefst kl. 15:00 laugardaginn 27. febrúar
Aðgangseyrir: 2.000 kr. fullorðnir, 1.000 kr. 7 – 12 ára.
Frítt fyrir 6 ára og yngri.
Innifalið í verði er afmæliskaffi í hléi.
Klukkan 19.00 er svo grillveisla í boði Þyts og smá húllum hæ!
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
LH auglýsir eftir mótshöldurum