KS-Deildin byrjar á þorra
Meistaradeild Norðurlands í hestaíþróttum, KS-Deildin, verður haldin í þriðja sinn í vetur. Mótaröðin fer að venju fram í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkóki. Eyþór Jónasson, framkvæmdastjóri Svaðastaðahallarinnar og einn af eigendum KS-Deildarinnar, segir að hvergi verði slakað á í vetur. Kaupfélag Skagfirðinga standi sterkt að baki deildarinnar og fullur byr sé í seglunum. Eyþór segir að mikill áhugi sé á meðal knapa á svæðinu og býst við töluvert meiri þátttöku í úrtöku en í fyrra. Úrtakan fer fram í janúar á nýju ári og fyrsta mótið seinni partinn í febrúar. Árni Gunnarsson hjá kvikmyndagerðinni Skottu ehf. mun gera sjónvarpsþætti um mótaröðina eins og í fyrra.
Mynd: Bjarni Jónasson, knapi ársins í Skagafirði, mun væntanlega taka þátt í KS-Deildinni. VB MYND/JENS EINARSSON.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
LH auglýsir eftir mótshöldurum