Ísmót á Vatnshamarsvatni 28.febrúar
Hestamannafélagið Faxi heldur opið ístölt sunnudaginn 28. febrúar kl. 13.00 á Vatnshamravatni (klst. akstri frá Reykjavík, keyrt í átt að Hvanneyri ef komið er frá Reykjavík. Aftur til vinstri í átt að Hvanneyri og síðan sést vatnið, bílar og fólk á hægri hönd).
Keppt verður í fjórum flokkum og verður dagskráin þessi:
- 17 ára og yngri (hægt tölt og fegurðartölt)
- 2. flokkur (hægt tölt og fegurðartölt)
- Ung og/eða nýhrossakeppni (ekki keppnisvön hross) (hægt tölt og fegurðartölt)
- 1.flokkur (hægt tölt, hraðabreytingar og fegurðartölt).
Úrslit í lok hvers flokks.
Skráning á staðnum til kl. 12:45.
Skráningargjald er kr. 1000 í alla flokka. A.t.h. Tökum ekki kort.
Gefendur verðlauna er hestavöruverslunin knapinn Borgarnesi, Íþróttamiðstöðin Borganesi, Hyrnan Borganesi, Hárgreiðslustofan PK, Hárgreiðslustofan Sóló o.fl.
Heit kjötsúpa á staðnum.
ATH: Takmarkaður fjöldi bíla kemst að vatninu og því athygli vakin á að fólk velji sér klæðaburð við hæfi þó svo að veðurspáin sé góð.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH