Fimmgangskeppni Uppsveitadeildar
Fimmgangskeppni Uppsveitadeildar Loga, Smára og Trausta fór fram í Reiðhöllinni á Flúðum síðastliðinn föstudag.
„Fjölmargir áhorfendur fylgdust með skemmtilegri keppni sem fyrr. Margt góðra hesta og knapa sýndu listir sínar og sumir sýndu góð tilþrif.
Eftir forkeppni lá fyrir að í A – úrslit fóru Jón Óskar Jóhannesson og Örvar frá Gljúfri, Árný Oddbjörg Oddsdóttir og Elding frá Hvoli, Bjarni Bjarnason og Hnokki frá Þóroddsstöðum og Hermann Þór Karlsson og Gítar frá Húsatóftum.
Í B – úrslit fóru Hulda Finnsdóttir og Mökkur frá Hólmahjáleigu, Jón W. Bjarkason og Stjörnunótt frá Litlu Gröf, Guðjón S. Sigurðsson og Flauta frá Kolshóli 3, Arnar B. Sigurðsson og Rebekka frá Kjartansstöðum, Finnur Jóhannesson og Gletta frá Glæsibæ.
Arnar Bjarki og Rebekka áttu í harðri baráttu við Huldu og Mökk um sæti í A – úrslitum. Í lokin skyldu aðeins 0,03 stig á milli þeirra þar sem Arnar Bjarki og Rebekka höfðu betur.
Það kom fljótt í ljós í A -úrslitum að Bjarni Bjarnason og Hnokki frá Þóroddsstöðum voru í nokkrum sérflokki. Arnar Bjarki og Rebekka gerðu þó harða hríð að þeim með öflugum skeiðsprettum. Að lokum stóðu þeir efstir Bjarni og Hnokki með einkunnina 7,29. Arnar Bjarki og Rebekka hlutu annað sætið með 6,88 í einkunn. Í þriðja sæti enduðu Jón Óskar og Örvar með 6,71, Árný og Elding hlutu fjórða sætið með einkunnina 6,43 og Hermann Þór og Gítar í því fimmta með 6,38.
Staðan í stigakeppninni er þessi:
Stigakeppni einstaklinga
Arnar Bjarki Sigurðarson 47
Bjarni Bjarnason 47
Hulda Finnsdóttir 41
Árný Oddbjörg Oddsdóttir 37
Hermann Þór Karlsson 35
Finnur Jóhannesson 33,5
Jón Óskar Jóhannesson 33
Sigurbjörg Bára Björnsd. 32,5
Guðjón Sigurliði Sigurðsson 25,5
Þorsteinn G. Þorsteinss. 25,5
Guðmann Unnsteinssn 24,5
Sólon Morthens 24,5
Líney Kristinsdóttir 22,5
Stigakeppni keppnisliða
Hrosshagi / Sunnuhvoll 108,5
Arionbanka liðið 94,5
Þórisjötnar 90
Gamli og guttarnir 85
Landstólpi 67,5
Forsæti 56
Jáverk 50
Kílhraun 48,5
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH