Gunnar Sturluson varaformaður FEIF
Gunnar Sturluson tók við varaformennsku í FEIF á stjórnarfundi samtakanna í Malmö sem haldinn var um helgina. Hann tók sæti í stjór FEIF fyrir ári síðan. Gunnar var varaformaður LH en ákvað að gefa ekki kost á sér áfram á LH þingi um daginn til að geta sinnt málefnum FEIF betur. „Við þurfum að gefa okkur betur að FEIF samstarfinu. Þar er fólk sem sækist eftir samvinnu við okkur og vill hlusta á okkur. Við höfum kannski ekki verið nógu dugleg að líta yfir grindverkið og taka þátt í þessu starfi. Við megum ekki festast í að eyða tíma okkar og kröftum í að karpa um íslenskar sérreglur og gleyma að taka þátt í þróuninni innan FEIF. Við verðum að átta okkur á því að það eru fleiri reiðhestar í notkun í útlöndum en hér heima. Forsenda fyrir því að við höldum forystuhlutverki okkar sem upprunaland er að taka þátt í alþjóðlegu samstarfi innan FEIF,“ segir Gunnar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH