Hervar frá Hamarsey sigraði folaldasýningu Sörla
Folaldasýning Sörla var haldin laugardaginn 13.mars, og tókst mjög vel. Dómari var Jón Vilmundarson og var 21 folald skráð til leiks. Tíu efstu folöldin fengu verðlaunapening og folatoll auk þess sem sigurvegarinn hlaut Þjórsárbakka-bikarinn glæsilega. Þrír folatollar voru boðnir upp og voru Sörlafélagar og fleiri duglegir í að bjóða í enda um tolla undir glæsilega stóðhesta að ræða; Arð frá Brautarholti, Fróða frá Staðartungu og Blæ frá Torfunesi.
Efstu folöldin voru glæsileg, þroskamikil og gangfalleg. Hervar frá Hamarsey varð efstur að stigum, undan Aroni og 1. verðlauna Keilisdóttir. Hervar sem er óvenju framfallegur, fótahár og bolléttur sýndi flotta takta, mikinn fótaburð og mýkt á gangi. Í öðru sæti varð jörp hryssa, Fjóla frá Kjarnholtum I, en Magnús Einarsson í Kjarnholtum kom að austan með skemmtilegt innlegg í sýninguna, enda hefur hann þróað sína sérstöku aðferðir við að stilla upp og reka til folöld sín. Fjóla var einstaklega mjúk og fjölhæf á gangi, hlutfallarétt og falleg hryssa. Fjóla var undan Keilissyninum Frumherja frá Kjarnholtum og Kolskeggsdótturinni Heru frá Kjarnholtum. Í þriðja sæti varð svo gullfallegur og ganggóður brúnn foli undan Alvari frá Brautarholti, Glaumur frá sama bæ. Alvar er undan Dalvari frá Auðsholtshjáleigu og einni mestu ræktunarhryssu Íslands, Öskju frá Miðsitju. Móðir Glaums er 1. verðlauna Stígsdóttirin Gæska frá Fitjum.
Myndir frá sýningunni eru inni á ljósmyndasíðunni Flickr undir linknum: http://www.flickr.com/photos/48365941@N07/
Úrslitin urðu eftirfarandi:
1. Hervar frá Hamarsey
Brúnn
Faðir: Aron frá Strandarhöfði
Móðir: Hrund frá Árbæ
Eigandi og ræktandi: Hrossaræktarbúið Hamarsey
Folatollur í verðlaun: Herjólfur frá Ragnheiðarstöðum
2. Fjóla frá Kjarnholtum
Jörp
Faðir: Frumherji frá Kjarnholtum
Móðir: Hera frá Kjarnholtum
Ræktandi og eigandi: Magnús Einarsson
Folatollur í verðlaun: Galdur frá Grund
3. Glaumur frá Brautarholti
Brúnn
Faðir: Alvar frá Brautarholti
Móðir: Gæska frá Fitjum
Eigandi og ræktandi: Björn Kristjánsson
Folatollur í verðlaun: Aladín frá Tjaldhólum
4. Bruni frá Brautarholti
Rauðblesóttur
Faðir: Hnokki frá Fellskoti
Móðir: Ambátt frá Kanastöðum
Eigandi og ræktandi: Snorri Kristjánsson
Folatollur í verðlaun: Vígar frá Skarði
5. Víðir frá Hafnarfirði
Brúnstjörnóttur, leistóttur
Faðir: Hrafn frá Tjörn 2
Móðir: Vör frá Ytri-Reykjum
Eigandi: Topphross ehf
Ræktandi: Snorri Rafn Snorrason
Folatollur í verðlaun: Búri frá Feti
6. Þokkadís frá Hafnarfirði
Grá
Faðir: Arður frá Brautarholti
Móðir: Toppa frá Hafnarfirði
Eigandi og ræktandi: Salóme Kristín Jakobsdóttir og Jón Pálsson
Folatollur í verðlaun: Jökull frá Staðartungu
7. Birta frá Gottorp
Móálótt
Faðir: Kjarni frá Þjóðólfshaga
Móðir: Victoría frá Gottorp
Eigandi og ræktandi: Einar Hjaltason
Folatollur í verðlaun: Bjartur frá Sæfelli
8. Vordís frá Sæfelli
Grá
Faðir: Bjartur frá Sæfelli
Móðir: Grá frá Krossi
Eigandi og ræktandi: Jens Petersen
Folatollur í verðlaun: Möttull frá Torfunesi
9. Smáradís frá Ragnheiðarstöðum
Rauð
Faðir: Orri frá Þúfu
Móðir: Sif frá Prestsbakka
Eigandi og ræktandi: Helgi Jón Harðarson
Folatollur í verðlaun: Alvar frá Brautarholti
10. Kónguló frá Gottorp
Rauðstjörnótt
Faðir: Eldjárn frá Tjaldhólum
Móðir: Þota frá Ármúla
Eigandi og ræktandi: Einar Hjaltason
Folatollur í verðlaun: Háski frá Hamarsey
——————————————————————————–
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH