Stórsýning Fáks

  • 18. apríl 2012
  • Fréttir
Stórsýning Fáks

Flottir hestar, glaumur og gleði verða á Stórsýningu Fáks sem haldin verður í reiðhöllinni í Víðidal nk. laugardagskvöld.

 
„Þar munu fyrrverandi landsmótssigurvegarar ásat ungum glæsihrossum þeysa um höllina enda koma Skessurnar úr Borgarfirði og pilsaþytast um salinn. Unglingarnir munu sýna flott atriði, afkvæmahópar stóðhesta og kynbótahross.  Einnig verður einvígi aldarinnar þar sem stærstu  með stærstu “show”kóngum Íslandshestaheimsins sem etja kappi. Dúndrandi fjör og Bjórkvöld á eftir (frítt inn),“ segir í tilkynningu.
 
Sýningin hefst kl. 21:00 en húsið opnar kl. 20:00.
 
Miðasala við innganginn en einnig er hægt að nálgast miða í Reiðhöllinni á skrifstofutíma á föstudaginn.
 
Miðaverð á Stórsýninguna er 2.500 kr.
 
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link