Lífið hjá hestamannafélögum
Hestamönnum gefast færi á að læra grundvallarhandtökin við járningar, keppnisárið fer að hefjast og hross eru tekin í misgripum. Sótakrakkar ætla að ríða berbakt og Þytsmenn ætla á ís. Eiðfaxi hleraði fregnir frá hestamannafélögum:
- Funi stóð fyrir fræðslufyrirlestri 5. janúar sl. þar sem Jóhann Friðgeirsson talaði um ábendingar knapa og viðbrögð hestsins við þeim. Góður rómur var gerður að fræðslunni eins og sjá má hér.
- Skuggi boðar til framhaldsfundar í félagsheimili sínu á morgun, þriðjudaginn 10. janúar kl. 20.
- Félagsfundur Léttfeta fer fram í Tjarnarbæ föstudaginn 13. janúar kl. 20.30.
- Fyrsta mót vetrarins hjá Létti á Akureyri er Nýárstölt félagsins og Háhóls sem haldið verður í Top-Reiter höllinn nk. laugardag 14. janúar kl. 17. Skráning er samdægurs en allar upplýsingar má nálgast hér.
- Andvari býður upp á reiðnámskeið fyrir fullorðinna sem hefjast í janúar með reiðkennurunum Ævari Erni og Róberti Petersen.
- Guðmar Aubertsson dýralæknir á Sandhólaferju kemur í heimsókn til Hafnar í Hornafirði í janúar, með tól og græjur sem hesteigendur ættu að nýta sér. Sjá betur hér.
- Sóti býður upp á almennt reiðnámskeið fyrir unga knapa í janúar og febrúar sem Karen W. Barrysdóttir kennir. Þá verður farið í þrautabrautið, riðið verður berbakt og farið í skemmtilega útreiðatúra ef veður og reynsla knapanna leyfir.
- Frá Mána á Suðurnesjum berast fréttir af heyþjófnaði og hryssu sem tekin var í misgripum.
- Einnig berast fréttir af týndu hrossi á Selfossi og í Hafnafirði hefur brúnn hestur verið tekið í misgripum fyrir þennan.
- Sigurður Torfi Sigurðsson járningameistari heldur járninganámskeið hjá Sleipnismönnum sem hefst 16. janúar. Nánari upplýsingar hér.
- Hins vegar mun gunnar Guðmundsson járningameistari halda járninganámskeið fyrir Sörlamenn og hefst það 19. janúar. Frekari upplýsingar hér.
- Þytur stefnir að því að geta haldið ísmót á Gauksmýrartjörn 21. janúar nk. ef aðstæður leyfa.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Fjórðungsmót Austurlands á næsta ári