Góð frammistaða Árna Björns og Arisar
Annar inn á völlinn í fimmgangskeppni Heimsmeistaramótsins var Árni Björn Pálsson á Aris frá Akureyri. Sýning þeirra var vönduð og velheppnuð. Þeir hlutu 7,13 í einkunn og eru sem stendur í 4. sæti, þegar 16 þátttakendur hafa lokið keppni.
Enn eiga sterkir keppendur eftir að mæta á brautina, s.s. Vignir Jónasson á Krafti frá Bringu, Rúna Einarsdóttir Zingsheim á Frey vom Nordsternhof og Stian Pedersen, heimsmeistari í fimmgangi, en hann mætir með nýja hest, Létti fra Hellesylt og verður gaman að sjá hvernig þeim tekst til. Við getum vonað að frammistaða Árna Björns og Arisar hafi tryggt þeim sæti í úrslitum.
Myndskeið af frammistöðu Árna Björns og Arisar verður aðgengilegt innan skamms.
Staðan eins og hún er eftir að 16 keppendur hafa lokið sýningum í forkeppni:
01: 126 Josefin Birkebro [SE] – Kjarni vom Wallberg [DE1999108313] 7,33
PREL 7,4 – 7,1 – 7,2 – 7,4 – 7,5
02: 033 Julie Christiansen [DK] – Örn frá Efri-Gegnishólum [IS2003187767] 7,23
PREL 7,4 – 7,3 – 7,2 – 7,2 – 6,9
02: 073 Vicky Eggertsson [DE] – Kvikur vom Barghof [DE1995102522] 7,23
PREL 7,4 – 7,0 – 7,0 – 7,3 – 7,5
04: 004 Árni Björn Pálsson [IS] – Aris frá Akureyri [IS2000165607] 7,13
PREL 7,4 – 7,0 – 7,4 – 7,0 – 6,9
05: 128 Magnús Skúlason [SE] – Hraunar frá Efri-Rauðalæk [IS1999165491] 7,03
PREL 7,4 – 6,9 – 6,9 – 6,8 – 7,3
06: 131 Sandra Jonsson [YR] [SE] – Ari från Stora Öllstorp [SE1996106814] 6,90
PREL 6,9 – 6,8 – 7,0 – 7,1 – 6,6
07: 111 Stine Helene Sørvåg [YR] [NO] – Ljósvaki frá Akureyri [IS1992165495] 6,60
PREL 6,8 – 6,6 – 6,3 – 6,7 – 6,5
08: 139 Diddi Sigurbjörnsson [CH] – Tvinni frá Grafarkoti [IS2001155419] 6,57
PREL 6,5 – 6,6 – 6,6 – 6,8 – 6,5
09: 106 Kristin Elise Andersen [NO] – Grandi frá Laugardal [IS2001157795] 6,53
PREL 6,7 – 6,6 – 6,4 – 6,3 – 6,6
10: 162 Marie Lichtenegger [AT] – Glaður frá Brattholti [IS2000188500]6,50
PREL 6,5 – 6,6 – 6,4 – 6,3 – 6,6
11: 136 Catherine Mynn [CH] – Snotri vom Lipperthof [DE1995110425]6,40
PREL 6,6 – 6,4 – 6,2 – 6,4 – 6,4
12: 088 Jaap Groven [NL] – Gimsteinn frá Skáney [IS1994135801] 6,30
PREL 6,5 – 6,0 – 5,7 – 6,5 – 6,4
13: 112 Thomas Larsen [NO] – Harry fra Stugudal [NO2001116001] 6,20
PREL 6,6 – 6,4 – 5,5 – 6,4 – 5,8
14: 026 Camilla Jørgensen [YR] [DK] – Númi frá Þóroddsstöðum [IS1993188802] 5,90
PREL 6,5 – 5,6 – 5,7 – 5,1 – 6,4
15: 024 Toke Van Branteghem [BE] – Eldjárn vom Mandelbachtal [DE1993105252] 5,53
PREL 5,9 – 5,9 – 5,6 – 5,1 – 5,0
16: 115 Julija Stamcar [YR] [SI] – Flögri frá Flekkudal [IS1998125045] 4,77
PREL 5,1 – 4,6 – 4,6 – 4,6 – 5,1
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH