Fláki er hrikalegur
Fláki frá Blesastöðum 1a var hrikalegur í milliriðli í A flokki á LM2012. Hann var efstur eftir forkeppni og bar þá nokkuð af. Í glampandi sólinni í dag var hann ennþá meira afgerandi. Tinnusvartur og gljáandi með hvíta tvístjörnu (blesu). Allur gangur er frábær og 8,81 er ekki ofgefið fyrir frábæra sýningu.
Fláki er örviljug og heitur hestur, en með frábært geðslag. Honum hefur frá upphafi verið riðið við hringamél og meistari Þórður Þorgeirsson hefur enga breytingu gert á því nú á Landsmótinu. Það prýðir heildarmyndina óneitanlega.
Reiðmennska Þórðar á hestinum var í alla staði óaðfinnanleg; jafnvægi og öryggi eins og honum einum er lagið. Hann var ekki minna svalur en John Wayne, jafnvel þótt miðað sé við tímabilið þegar sá síðarnefndi var upp á sitt besta. Þórður svalari ef eitthvað er.
Stakkur fylgir þétt á eftir. Diddi er ennþá ískaldur og öruggur, engin mistök, frábært skeið. Það væri sögulegt ef geldingur bæri sigur af þeim glæstu og fasmiklu stóðhestum sem hann á í höggi við. En Diddi hefur margoft gert ótrúlega hluti. Sú lykt angar af honum nú.
Þriðji er stóðhesturinn Fróði frá Staðartungu með 8,71, knapi Sigurður Sigurðarson. Fróði var mjög góður en skákaði þó ekki Stakki þótt hann væri næstsíðastur, númer 29 af 30 hestum, en Stakkur fimmtándi í röð. Einkunnar hafa tilhneigingu til að hækka þegar líður á keppni.
Nokkuð ljóst er að slagurinn verður á milli Fláka og Stakks, Þórðar og Sigurbjörns. Brokk og skeið er frábært í báðum og töltið mjög gott. Fláki hefur litinn og fasið framyfir og er öryggið uppmálað. Hestur sem aldrei hefur tekið feilpúst í sýningu. Stakkur er einnig mjög yfirvegaður nú, en hefur átt það til að spennast upp og verða óstýrilátur. Ekkert bendir þó til þess að hann sé á leið í þann gírinn enn sem komið er. Það verða spennandi úrslit á sunnudaginn.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH