Þolreið á LM2012
Ákveðið hefur verið að framlengja skráningarfrestinn í þolreiðina á Landsmót, til föstudagsins 29. júní. Tekið er við skráningum á netfangið [email protected].
Þeir sem eru 14 ára og eldri og eiga/hafa aðgang að vel þjálfuðum hesti, eru hvattir til að skrá sig og spreyta sig á 14 km vegalengd þolreiðarinnar, sem farin verður strandleiðina frá félagssvæði Harðar í Mosfellsbæ yfir í landsmótssvæðið í Fáki.
Sjá nánari upplýsingar um þolreiðina hér að neðan:
Laugardaginn 30. júní verður haldin þolreið frá félagssvæði Harðar að landsmótssvæðinu og endað á stóra hringvellinum á félagssvæði Fáks. Það geta allir tekið þátt á vel þjálfuðum reiðhestum en þolreið í þessari mynd er haldin árlega á íslenskum hestum um alla Evrópu.
Vegleg verðlaun eru í boði en fyrir fyrsta sæti eru veittir flugmiðar til Evrópu með Iceland Express. Einnig veitir Hestaleigan Laxnes veglega bikara fyrir fyrsta til þriðja sæti.
Þetta verður einstaklingskeppni en ekki liðakeppni og hvetjum við þá sem áhuga hafa á þátttöku að skrá sig á netfangið [email protected]. Þar þarf að koma fram nafn á knapa og kennitala, nafn á hesti og IS-númer. Þátttökugjald er einungis 2000 krónur og skulu lagðar inn á reikning Landsmóts ehf. 515-26-5055, kt. 501100-2690.
Síðasti skráningardagur er 29. júní
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH