Vega salt á hnífsegg
Milliriðli klárhesta með tölti er lokið. Hrímnir frá Ósi, knapi Guðmundur Björgvinsson er efstur með 8,89 og jafn honum í öðru sæti með 8,89, en brotabrotum neðar, er Loki frá Selfossi, knapi Sigurður Sigurðarson. Það er nokkuð ljóst að þessir tveir hestar munu berjast um efsta sætið í A úrslitum, nema óhapp hendi þá. Þeir hafa allnokkra yfirburði yfir næstu hesta.
Krít frá Miðhjáleigu, sem hefði getað yljað þeim undir uggum var hátt stemmd í milliriðlinum, krosstökk í tvígang og knapinn Leó Geir Arnarson tók þá ákvörðun að ljúka ekki keppni, sem var það skynsamlegasta í stöðunni. Sýningin farin í vaskinn.
Klárhestarnir á LM2012 eru allgóðir í heildina, en ekki frábærir. Of mikið er um að hestar leiti upp úr beisli eða séu óþjálir í taumum á annan hátt. Ekkert hross í flokknum sameinar það að vera frábærlega þjált en jafnframt glæsilegt og hjólandi á gangi, nema þá helst Loki.
Möller frá Blesastöðum 1a var mjög vel sýndur af Helgu Unu Björnsdóttur, en skortir glæsileika á hægu til að skarta sem klárhestur. Fura frá Enni var einnig sérlega vel sýnd hjá Árna Birni Pálssyni og kæmi ekki á óvart ef hún ynni B úrslitin. Fimmtán hross af 30 í milliriðlinum fara í úrslit, átta keppa í A úrslitum, en ekki tíu eins og ranglega var farið með í frétt á vefnum fyrr í dag.
Niðurstöður úr milliriðli:
1 Hrímnir frá Ósi / Guðmundur Björgvinsson 8,89
2 Loki frá Selfossi / Sigurður Sigurðarson 8,89
3 Glóðafeykir frá Halakoti / Einar Öder Magnússon 8,74
4 Álfur frá Selfossi / Christina Lund 8,70
5 Freyðir frá Leysingjastöðum II / Ísólfur Líndal Þórisson 8,63
6 Sveigur frá Varmadal / Hulda Gústafsdóttir 8,60
7 Stefnir frá Þjóðólfshaga 1 / Viðar Ingólfsson 8,59
8 Hlekkur frá Þingnesi / Eyjólfur Þorsteinsson 8,58
9 Esja frá Kálfholti / Ísleifur Jónasson 8,58
10 Gáski frá Sveinsstöðum / Ólafur Magnússon 8,56
11 Segull frá Mið-Fossum 2 / Viðar Ingólfsson 8,56
12 Fura frá Enni / Árni Björn Pálsson 8,55
13 Gaumur frá Dalsholti / Guðmundur Björgvinsson 8,55
14 Klerkur frá Bjarnanesi 1 / Eyjólfur Þorsteinsson 8,54
15 Eldjárn frá Tjaldhólum / Halldór Guðjónsson 8,52
16 Náttar frá Vorsabæjarhjáleigu / Anna S. Valdemarsdóttir 8,51
17 Möller frá Blesastöðum 1A / Helga Una Björnsdóttir 8,50
18 Sleipnir frá Kverná / Jóhann Kristinn Ragnarsson 8,50
19 Stígandi frá Stóra-Hofi / Ólafur Ásgeirsson 8,47
20 Njáll frá Friðheimum / Hinrik Bragason 8,47
21 Jódís frá Ferjubakka 3 / Hulda Finnsdóttir 8,46
22 Klængur frá Skálakoti / Vignir Siggeirsson 8,42
23 Lukka frá Kálfsstöðum / Mette Mannseth 8,41
24 Bliki annar frá Strönd / Lena Zielinski 8,39
25 Dalur frá Háleggsstöðum / Barbara Wenzl 8,36
26 Dögg frá Steinnesi / Ólafur Ásgeirsson 8,34
27 Sóllilja frá Álfhólum / Sara Ástþórsdóttir 8,31
28 Dáti frá Hrappsstöðum / John Sigurjónsson 8,04
29-30 Frakkur frá Laugavöllum / Berglind Ragnarsdóttir 0,00
29-30 Krít frá Miðhjáleigu / Leó Geir Arnarson 0,00
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH